Veður

Gul við­vörun gefin út fyrir landið allt

Atli Ísleifsson skrifar
Landið allt er undir þegar kemur að viðvörunum Veðurstofunnar.
Landið allt er undir þegar kemur að viðvörunum Veðurstofunnar.

Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir á landinu öllu, en þær taka ýmist gildi á morgun laugardag eða á sunnudag. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi annað kvöld á suðvestan- og vestanverðu landinu. Gul viðvörun hefur svo verið gefin út fyrir landið allt seinni partinn á sunnudag.

Á vef Veðurstofunnar má sjá að á höfuðborgarsvæðinu verði viðvörun í gildi milli 15 og 20 á morgun. Á vestanverðu landinu tekur gul viðvörðun gildi klukkan 11 en milli 16 og 20 á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á Breiðafjarðarsvæðinu. Þar er spáð suðaustan og sunnan 18 til 28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki.

Gul viðvörun verður í gildi á landinu öllu seinni partinn á sunnudaginn þar sem útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Viðvörunin tekur gildi klukkan 15 á sunnudag og verður í gildi til klukkan 1, aðfararnótt mánudags.

Á vef Veðurstofunnar segir að það sé því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða megi búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s).

Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.

Viðvaranir Veðurstofunnar:

Höfuðborgarsvæðið

  • Sunnan hvassviðri (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 15:00 – 20:00
  • Suðaustan og sunnan 13-20 m/s, hvassast í efri byggðum. Búast má við snörpum vindhviðum við háhýsi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma.

Faxaflói

  • Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 14:00 – 21:00
  • Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma.

Breiðafjörður

  • Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 11:00 – 16:00
  • Suðaustan og sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.
  • Sunnan stormur eða rok (Appelsínugult ástand)
  • 17. okt. kl. 16:00 – 20:00
  • Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu.
  • Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 20:00 – 18 okt. kl. 00:00
  • Sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.

Vestfirðir

  • Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 13:00 – 18. okt. kl. 00:00
  • Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.

Strandir og Norðurland vestra

  • Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 16:00 – 18 okt. kl. 00:00
  • Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu.

Miðhálendið

  • Sunnan stormur (Gult ástand)
  • 17. okt. kl. 12:00 – 18. okt. kl. 03:00
  • Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast norðan undir jöklum og mjög snarpar vindhviður. Varasamt ferðaveður. Búast má við rigningu, talsverð sunnatil.

Allt Ísland

  • Sunnan og suðvestan stormur (Gult ástand)
  • 18. okt. kl. 15:00 – 19. okt. kl. 01:00
  • Útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Það er því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða má búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s). Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×