Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Jakob Bjarnar skrifar 3. nóvember 2026 14:22 Daði Már fjármálaráðherra var fjarri góðu gamni en þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu kröfu um að hann mætti niður á þing strax í dag og gerði grein fyrir máli sínu í ljósi þess sem komið hefur á daginn varðandi brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar. vísir/einar Stjórnarandstaðan fór mikinn undir dagskrárliðnum Fundarstjórn forseta og krafðist þess að Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mætti í þingið til að gera grein fyrir máli sínu; hann hafi talað gegn betri vitund þegar hann svaraði fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um ástæður þess að Hörður Arnarson sagði starfi sínu sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ára feril.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, hóf umræðuna og sagði það svo að 19. október síðastliðinn hafi hann spurt fjármálaráðherra hvað hann vissi um tildrög þess að Hörður sagði starfi sínu lausu. Guðlaugur sagði Daða hafa svarað því svo til, með þjósti, að sagan öll væri sögð; forstjórinn hefði ekki hrökklast úr starfi eftir 17 ára farsælt starf. Nú lægi hins vegar fyrir að svo væri ekki og hann krafðist þess af Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis að hún beitti sér fyrir því að Daði Már mætti til að gera grein fyrir máli sínu strax í dag. Fjölmargir stjórnarandstæðingar fóru í pontu í umræðu sem stóð í rúman hálftíma. Þeir töldu fulla ástæðu til að ræða þetta betur og nefndu að í ljós hefði komið að starfsmenn fjármálaráðuneytis hefðu haldið frá apríl níu fundi með stjórn, án forstjóra. Fram kom í yfirlýsingu stjórnar Landsvirkjunar í gær að Hörður eða staðgengill hans hefðu setið þá fundi með ráðuneytinu þar sem málefni tengd rekstri Landsvirkjunar hefðu verið rædd. Jens Garðar Helgason, Sjálfstæðisflokki, sagði þetta óeðlileg afskipti eiganda og stjórnar. Hann sjálfur hafi átt sæti í stjórn Landsvirkjunar í ár og hann hafi ekki setið einn einasta slíkan fund með starfsmönnum ráðuneytisins eða ráðherra. „Þetta er orðið mjög óeðlilegt.“ Þá vísuðu stjórnarandstæðingar til þeirra orða Harðar að hann óttaðist afskipti stjórnar og að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu. Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, var meðal þeirra sem tóku til máls og hann sagði þetta grafalvarlegt mál og að nú væri komið á daginn að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt, hann hefði talað gegn betri vitund. „Hann greindi þinginu ranglega frá, fjölmiðlum og þar með þjóðinni.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Landsvirkjun Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Erlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira