Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Eiður Þór Árnason skrifar 21. október 2026 22:09 Guðmundur Arnar Sigmundsson hjá Advania er orðinn rólegri en það eru ekki allir hólpnir. Vísir/Ívar Fannar Forstöðumaður netöryggis- og gagnaþróunar hjá Advania segir klukkuna tifa eftir að greint var frá alvarlegum öryggisveikleika sem hefur áhrif á stóran hluta vefsíðna. Mikið og gott starf hafi verið unnið í dag til að loka fyrir öryggisholur en hann hafi áhyggjur af minni rekstraraðilum sem hafi ekki enn brugðist við.
Óprúttnir aðilar reyni nú að komast inn á netþjóna um allan heim og nýta sér gallann til að komast yfir viðkvæm gögn eða setja upp bakdyr sem geti veitt þeim aðgang að kerfunum síðar og þá jafnvel löngu eftir að búið er að loka fyrir umræddan veikleika. Gervigreindartól hafi svo gert fleirum kleift að notfæra sér slíka galla. Þetta segir Guðmundur Arnar Sigmundsson hjá Advania en hann var áður forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS. Mikill handagangur var í öskjunni hjá hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum á heimsvísu eftir að upp komst um gallann í PHP-hugbúnaðarkerfinu sem stór hluti internetsins keyrir á. Þá hafa netöryggisstofnanir hér á landi sem og erlendis hringt viðvörunarbjöllum. Þegar þetta er skrifað liggja vefir Reykjavíkurborgar og Strætó meðal annars niðri á meðan brugðist er við veikleikanum. Röskun var á vefþjónustum Háskóla Íslands í dag og virkar Beygingarlýsing íslensks nútímamáls, einn af vefjum Árnastofnunar, ekki sem skyldi. „Það er náttúrulega nóg að gera á svona dögum. Þetta er það stór og alvarlegur veikleiki. Þegar þetta kemur upp þá verður að bregðast rétt og hratt við,“ segir Guðmundur. „Þegar veikleikar verða opinberir og allir geta kynnt sér þá eða vita af þeim þá byrjar ákveðinn kappleikur við tímann þar sem þeir sem myndu reyna að misnota sér svona veikleika til þess að valda einhverjum skaða hlaupa af stað og þeir sem eru að reyna að verja þessi kerfi eru að reyna að fylla í allar öryggisholur.“ Það hafi gengið vel hjá viðskiptavinum Advania í dag. „Veikleikinn er þess eðlis að þeir sem nýta sér hann geta náð stjórn á þessum vefþjónum sem eru að hýsa vefsíður sem nýta sér þetta PHP-umhverfi án aðgangsstýringar og komist í gögn sem eru þar á bak við. Þannig að það var algjörlega kýrskýrt í okkar huga að það þyrfti í rauninni að taka hluta af viðkvæmum kerfum úr loftinu þangað til öryggisuppfærsla frá PHP kæmi sem var upp úr tvöleytinu í dag,“ bætir Guðmundur við. Gengið vel að ná utan um vandann hjá þeim Á svona dögum er væntanlega mikill hamagangur og mikið af símtölum. Eruð þið að vinna yfirvinnu eða búin í dag? „Þetta gekk að mestu svona hratt og vel fyrir sig að ná utan um þetta, einangra þau tilfelli sem voru viðkvæm og keyra inn þær uppfærslur sem þurfti. Þannig að ég held þetta sé bara í góðum farvegi akkúrat núna.“ Hann gat ekki upplýst um það hvort starfsfólk Advania hefði verið að vinna með stóra og þekkta íslenska vefi í dag. „Það voru tugir aðila í þjónustu okkar sem voru undir í þessum veikleika og það var bara tekið jafnt og þétt á því með öllum.“ „Það eru engar vísbendingar um að nokkur hafi getað nýtt sér þennan veikleika til þess að brjótast inn í kerfi, valda skaða eða stela gögnum eða eitthvað svoleiðis, þannig að mér líður vel með það. Það voru tímabundin óþægileg áhrif að þurfa að taka út virka þjónustu sem er mikilvæg fyrir okkar viðskiptavini úr loftinu,“ segir Guðmundur. Stundum þurfi að grípa til slíkra neyðarráðstafana þegar um er að ræða svo alvarlegan veikleika. „PHP er í rauninni vélin á bak við stóran, ef ekki jafnvel bara meirihluta, allra vefsíða í heiminum. Þegar svona alvarlegur veikleiki kemur upp þá fer öll viðbragðskeðjan í gang á heimsvísu.“ Vonar að allir átti sig á alvarleikanum Hefur þú áhyggjur af minni fyrirtækjum eða aðilum sem hafa vefsíðu og eru kannski eru ekkert alltaf duglegir að uppfæra hana eða eru ekki í virkri þjónustu hjá hugbúnaðarfyrirtæki eins og ykkar sem kannski átta sig ekki á alvarleikanum um leið? Þarf að huga meira að þeim hópi? „Já, ég hef áhyggjur af þeim sem hafa ekki gripið til ráðstafana í dag og hafa ekki gripið til þess að uppfæra kerfin. Þá eru þeirra kerfi hreinlega viðkvæm fyrir innbrotum. Það þarf að taka á því,“ segir Guðmundur og bendir fólki á að kynna sér leiðbeiningar netöryggissveitarinnar CERT-IS en hann hrósar sveitinni fyrir gott viðbragð í dag. Best sé að leita aðstoðar hjá sérfræðingum ef rekstraraðilar vefsíðna treysta sér ekki til að meta ástandið og viðbragðið. „Þetta er bara tímakapphlaup um hvort er á undan: þeir sem eru að verjast og fylla í öryggisholur eru að keppa á móti þeim sem eru að fara að nýta sér svona veikleika til þess að brjótast inn.“ Tilkoma gervigreindartóla hafi lækkað þröskuldinn hjá þeim sem vilji framkvæma netárásir umtalsvert en líka stytt viðbragðstímann sem rekstaraðilar hafi til að bregðast við veikleikum. Mun fleiri geti nú framkvæmt fágaðar netárásir en áður. „Þess vegna skiptir miklu máli að bregðast hratt við og, eins og margir gerðu víða um heim í dag, að taka frekar kerfin úr loftinu meðan það er verið að tryggja öryggi þeirra heldur en að taka þá áhættu að keyra þau áfram,“ segir Guðmundur.
Netöryggi Netglæpir Tækni Tengdar fréttir Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Tæknifyrirtækið Advania segir að loka hafi þurft tímabundið fyrir aðgang að íslenskum netþjónustum í dag vegna alvarlegs öryggisgalla sem uppgötvaðist. Vefsíðum stofnana og fyrirtækja víðsvegar um heim hefur verið lokað vegna gallans. 21. október 2026 15:45 Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Veikleiki á forritunarmáli sem jafnvel þúsundir íslenskra vefsíða nýta sér getur leitt til þess að netþrjótar komist yfir gögn sem finna má á vefsíðunum. Háskóli Íslands er meðal þeirra sem lokað hafa síðunum sínum tímabundið vegna veikleikans. Neyðaruppfærsla er komin og hvetur forstöðumaður CERT-IS alla til að uppfæra síðurnar sem fyrst. 21. október 2026 14:20 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Tæknifyrirtækið Advania segir að loka hafi þurft tímabundið fyrir aðgang að íslenskum netþjónustum í dag vegna alvarlegs öryggisgalla sem uppgötvaðist. Vefsíðum stofnana og fyrirtækja víðsvegar um heim hefur verið lokað vegna gallans. 21. október 2026 15:45
Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Veikleiki á forritunarmáli sem jafnvel þúsundir íslenskra vefsíða nýta sér getur leitt til þess að netþrjótar komist yfir gögn sem finna má á vefsíðunum. Háskóli Íslands er meðal þeirra sem lokað hafa síðunum sínum tímabundið vegna veikleikans. Neyðaruppfærsla er komin og hvetur forstöðumaður CERT-IS alla til að uppfæra síðurnar sem fyrst. 21. október 2026 14:20