„Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 15. október 2026 21:02 Einar Freyr segir að það verði að bregðast við til að koma í veg fyrir að reglulega flæði yfir þjóðveginn. Aðsend og Þórir Kjartansson Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri í Vík í Mýrdal, segir að betur hafi farið en á horfðist í gærkvöldi þegar sjór flæddi aðeins upp að Smiðjuvegi en ekki upp á þjóðveg 1. Í gær var spáð mjög hárri og þungri sunnanöldu, yfir átta metrum m, rétt utan Víkur.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær kom fram að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í gær og að við svipaðar aðstæður í desember í fyrra hefði flætt yfir þjóðveginn. „Þetta fór betur en á horfðist, gróf aðeins undan, sem betur fer í þetta skipti,“ segir Einar Freyr í samtali við fréttastofu. Hann segir að það hafi grafið undan Smiðjuveginum og að það þurfi að gera einhverjar örlitlar lagfæringar þar í kjölfar sjávarflóðanna í gær. „Annars fór þetta betur en á horfðist og við erum að samþykkja núna framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni til þess að fara í flóðvörn, sem maður getur kallað svona skvettuvörn, til að fyrirbyggja að flóð fari upp að þjóðveginum og mannvirkjum.“ Hann segir það ekki framtíðarlausn því landrofið sé verulegt og fjaran styttist og færist nær þjóðveginum og iðnaðarhverfinu sem er á Smiðjuveginum. Leggja hart að ríkinu Það þarf að fara í aðrar lausnir og þrautreyndar, að gera sandfangara,“ segir hann og að sveitarfélagið leggi hart að ríkinu að fjármagna slíkar framkvæmdir. „Ég hef vonir um að menn sjái orðið hættuna sem er aðsteðjandi.“ Hann segir framkvæmdaleyfið sem sé verið að gefa út til að gera flóðvörn til þess að fyrirbyggja að það fari þarna upp að Smiðjuveginum og þjóðveginum. En fjaran er alltaf að færast nær og það eru stærri aðgerðir að fyrirbyggja það en er samt alveg hægt,“ segir hann og að til dæmis sé hægt að byggja grjótgarða út við sjó. Það hafi verið byggðir tveir svokallaðir sandfangarar út í sjó við Vík og þeir hafi „svínvirkað“. „Það svæði þar sem þeir eru komnir er tryggt og ekki í hættu. Þar er ekki landrof og þar hafa ekki verið vandræði með flóð. Það er það sem við erum að pressa á ríkið og nú held ég að menn sjái orðið að þjóðveginum stafar hætta af þessu. Það náttúrulega bara snertir líka bara byggðina fyrir austan okkur og allt Austurland í sjálfu sér.“ Eins og má sjá hefur farið aðeins af Smiðjuveginum í gær þegar flæddi yfir. Myndin er tekin í dag. Þórir Kjartansson Staðan enn grafalvarleg Hann segir stöðuna enn grafalvarlega en sem betur fer virðist sem menn séu vaknaðir til lífsins með það. „Við erum auðvitað mjög áfram um að það verði eitthvað gert og tilbúin að leggja okkar af mörkum hjá sveitarfélaginu.“ Leist ekkert á stöðuna í gær Einar Freyr var sjálfur á svæðinu um klukkan 19 í gær. „Manni leist auðvitað ekkert á þetta. Þegar ég var þarna um sjöleytið og þá hafði þetta nú ekki alveg náð hámarki. Það var gert rof hérna í gamlan veg til þess að reyna að fleyta vatni aðeins frá Smiðjuvegi, sem virðist hafa dugað.“ Hann segir ölduhæðina hafa verið mikla og fólk hafi átt von á því að staðan yrði verri. „En það er bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum. Mæla landrof Einar Freyr segir Kötlu jarðvang, í samstarfi við sveitarfélagið, hafa verið við landmælingar í Vík síðustu ár til að mæla fjöruna og landrofið og það dyljist engum í hvað stefnir. „Við erum auðvitað að mæla fjöruna, sveitarfélagið í samstarfi við Kötlu jarðvang. Þeir eru að stunda mælingar á fjörunni og hafa verið að því í mörg ár og geta séð sem sagt hversu mikið landrofið er og hefur verið. Það fer ekkert á milli mála hvað er að gerast og hvert þetta stefnir ef ekkert er gert.“
Mýrdalshreppur Ferðaþjónusta Veður Öryggi á ferðamannastöðum Umferðaröryggi Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira