Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Veðurstofa Íslands spáir rigningu eða súld með köflum vestanlands en úrkomulítið og allt að 23 stiga hita á Austurlandi. Ekki sé að vænta mikilla breytinga í veðri. Veður 14.7.2026 07:21
Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Útlit er fyrir rigningarveður á höfuðborgarsvæðinu út vikuna en sól og blíðu á Austurlandi. Nokkuð grátt hefur verið yfir suðvesturhorninu og vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu. Þá hefur nokkur rigning verið á vesturhluta landsins en talsvert þurrara fyrir austan. Veðurfræðingur segir allt stefna í að besta veðrið verði á Suðaustur- og Austurlandi um helgina. Veður 13.7.2026 20:19
Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Búast má við rigningu á köflum í dag, einkum vestantil á landinu. Hiti gæti náð allt að 22 stigum og enn verði hlýjast á Austfjörðum. Veður 13.7.2026 06:41
Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt í dag þar sem víða verða 5 til 13 metrar á sekúndu en 13 til 18 metrar syðst á landinu og einnig á Reykjanesi um tíma í kringum hádegi. Veður 7.7.2026 06:33
Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Suðaustur af Hvarfi er lægð og nálgast nú úrkomubakki frá henni úr suðri. Gera má ráð fyrir suðaustan og austan strekkingi eða allhvössum vindi og skýjað sunnan- og vestanlands. Þó verður hægari vindur og bjartviðri norðan heiða. Veður 6.7.2026 06:56
Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veðurstofa Íslands spáir allt að sautján stiga hita við suðurströnd Íslands í dag en sjö stiga hita við norðuströndina. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð sautján stiga hita en verður sömuleiðis skýjað. Veður 5.7.2026 07:25
Allt að sautján stiga hiti Bjart verður að mestu um sunnanvert landið í dag en dálitlar skúrir á Norðurlandi. Vindáttin verður norðvestan, átta til fimmtán metrar á sekúndu, en annars hægari vindur. Veður 4.7.2026 07:31
Bjart og hlýtt sunnan heiða Búast má við skúrakenndu veðri norðan- og austanlands í dag og sex til fimmtán stiga hita. Hins vegar verður yfirleitt bjart og hlýtt sunnan heiða með hita að sautján stigum. Veður 3.7.2026 07:19
Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, segir að það stefni í gott veður um allt land um helgina. Ef til vill mun góða veðrið ekki koma fyrir norðan fyrr en á laugardag. Veður 2.7.2026 18:35
Hlýjast fyrir austan Hlýjast verður norðaustanlands í dag en hitatölur á landinu verða frá sex til sautján stig. Búast má við rigningu með köflum. Veður 2.7.2026 07:15
Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Spáð er kalda eða strekkingi suðvestan- og vestanlands síðdegis en hægari vindi og björtu að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Áfram er spáð golu og kalda víða á morgun. Veður 30.6.2026 07:32
Væta með stífri norðaustanátt Í dag er spáð norðaustan átta til 15 metrum á sekúndu og víða rigningu. Samkvæmt spá verður hvassast norðvestantil og með suðausturströndinni. Síðdegis á að draga úr vindi og væta af og til í flestum landshlutum. Hiti verður á bilinu sjö til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Veður 28.6.2026 07:05
Stíf norðanátt með rigningu víða um land Í nótt og í fyrramálið gengur sakvæmt spá í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Einna hvassast verður á norðvestanverðu landinu þar sem spáir norðaustan 10-15 m/s og hviðum yfir 25 m/s við fjöll. Veður 27.6.2026 07:13
Allvíða skúrir og lægð nálgast Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan golu eða kalda og að það verði allvíða skúrir í dag. Veður 26.6.2026 07:08
Víða rigning en hiti að átján stigum Það mun ganga í suðvestan – fimm til þrettán metra á sekúndu – í dag, fyrst sunnantil. Veður 25.6.2026 06:58
Úrkoma í flestum landshlutum í dag Í dag má búast við hægri breytilegri átt og rigningu með köflum í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þurrt verði á norðvestur hluta landsins. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig. Veður 24.6.2026 06:46
Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt en hvassara og rigningu með köflum sunnantil á landinu í dag en að það bæti í úrkomu í kvöld. Stöku skúrir verði vestanlands en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti geti náð 16 stigum. Veður 23.6.2026 06:48
Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri suðlægri eða breytilegri átt í dag. Reiknað er með skúraleiðingum um mest allt land og að hiti verði yfirleitt á bilinu átta til fimmtán stig. Veður 22.6.2026 07:05
Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Sunnan heiða má búast við hátt í 16 stiga hita en líkur eru á skúrum síðdegis við suðurströndina. Fyrir norðan og austan má búast við áframhaldandi rigningu. Veður 20.6.2026 07:57
Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Í dag verður norðaustan kaldi eða stinningskaldi en sums staðar allhvass vindur á norðvestanverðu landinu. Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar verður rigning norðan- og austantil en bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum þar síðdegis. Hiti 6 til 15 stig. Veður 19.6.2026 07:07
Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan kalda eða stinningskalda , en allhvössum vindi við suðausturströndina og sums staðar í vindstrengjum á norðvestantil. Veður 18.6.2026 06:48
Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu. Veður 17.6.2026 07:36
Hiti að átján stigum norðan og vestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir austan- og norðaustanátt í dag með strekkings vindi syðst en annars yfirleitt hægari. Veður 16.6.2026 06:58
Austlæg átt og víða líkur á vætu Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fremur hægri, skýjuðu og eru líkur á vætu. Norðaustan- og austanlands ætti að létta til og verður hlýjast á Norðausturlandi í dag. Veður 15.6.2026 07:15