„Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. október 2026 06:26 Trump og Musk fyrir utan Hvíta húsið á dögunum. Vísir/Getty Elon Musk hefur opnað aftur fyrir aðgang Úkraínu að Starlink að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta í kjölfar þess að Selenskí forseti Úkraínu sagði að tengingin við Starshield, hernaðarútgáfu kerfisins, væri ekki komin í lag. Trump neitar að hafa haft samband við Musk vegna málsins.
Takmarkanir á þjónustunni höfðu komið niður á getu úkraínska hersins sem hefur lengi reitt sig á notkun Starlink-gervihnatta SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum sínum. Að undanförnu hefur Starlink reynst sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að stýra sérstökum varnardrónum sem eru hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum. Trump vildi ekki tjá sig um fréttir af því að hann hafi hringt í Musk og beðið hann um að aflétta takmörkunum á Úkraínu. „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á,“ sagði Trump. Óljóst hver tók ákvörðunina Mjög hefur verið á reiki hver ber ábyrgð á hægagangi Starshield-kerfisins. Reuters greindi frá því á dögunum að skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu og Musk hafði gefið í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn. Sjálfur neitaði Musk að hann bæri ábyrgð á hægaganginum. Hann sagði að Starshield-kerfin væru í eigu og undir stjórn bandarískra stjórnvalda en kerfið er knúið af gervihnattakerfi Musks. Bandarísk stjórnvöld neituðu hins vegar að hafa gefið Musk nokkurs konar fyrirmæli um að skerða aðganginn að kerfinu en þær komu á sama tíma og Trump þrýsti á Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta að hætta árásum á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi. Spenna á milli forsetanna tveggja hefur aukist síðustu daga og hefur Trump meðal annars sagt að kominn sé tími á nýjan forseta í Úkraínu. Sjálfur hefur Trump aflétt hluta refsiaðgerða gegn Rússlandi og samþykkt innflutning á rússneskri olíu til Bandaríkjanna en sú ákvörðun var gagnrýnd af Úkraínumönnum og evrópskum bandamönnum þeirra.
Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Elon Musk Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Fleiri fréttir „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Sjá meira