Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Smári Jökull Jónsson skrifar 20. október 2026 06:42 Stuðningsmenn sameinaðas Kanada fagna fyrstu tölum í nótt. Vísir/AP Íbúar Alberta-fylkis í Kanada höfnuðu í nótt tillögu um að hefja ferli í átt að sjálfstæði fylkisins. Úrslitin eru sigur fyrir forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, en aðskilnaðarsinnar segja sjálfstæðisbaráttunni ekki lokið.
Þegar búið var að telja rúmlega eina milljón atkvæða nú í morgun vildu um 76 prósent þeirra sem greitt höfðu atkvæði að Alberta yrði áfram hluti af Kanada en 23 prósent studdu að hafið yrði ferli sem leitt gæti til aðskilnaðar. Í frétt Guardian segir að þó að atkvæðagreiðslan hafi ekki snúið beint að sjálfstæði Alberta, sem aðskilnaðarsinnar voru ekki ánægðir með, hafi spurningin afhjúpað ákveðna sundrungu í stjórnmálum fylkisins og hefur vakið spurningar um einingu í landinu til lengri tíma litið. Meiri þátttaka en í síðustu atkvæðagreiðslu Tafir urðu á hundrað af fjórtán hundruð kjörstöðum fylkisins og seinkaði niðurstöðum um meira en tvær klukkustundir. Skömmu eftir að kjörstöðum var lokað í gærkvöldi bentu tölur þó til afgerandi sigurs þeirra sem vildu að fylkið yrði áfram hluti af Kanada. Samkvæmt gögnum kjörstjórnar höfðu 43 prósent íbúa á kjörskrá greitt atkvæði fyrir kjördag, annaðhvort utankjörfundar eða með póstatkvæði. Bentu tölur til þess að þátttakan í kosningunum gæti orðið meiri en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu fylkisins árið 2021. Spurningin um aðskilnað var ein af tíu sem lagðar voru fyrir íbúa í Alberta í gær. Hinar sneru meðal annars að innflytjendamálum, heilbrigðismálum, menntamálum og stjórnarskrárbundnum völdum fylkisins. Samkvæmt kjörstjórn Alberta mun taka nokkra daga að telja öll atkvæði. Varaði við tilraunum til að refsa ríkisstjórninni Dagana fyrir kosningar ferðuðust leiðtogar fylkisins og helstu stjórnmálamenn landsins um Alberta til að mæla fyrir sameinuðu Kanada. Forsætisráðherrann Mark Carney varaði íbúa fylkisins, þar sem finna má miklar olíuauðlindir, við því að kjósa einungis til þess að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar. „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking sem gæti leitt til margra ára óvissu og glataðra tækifæra fyrir íbúa Alberta og Kanada,“ sagði Carney meðal annars á fundi með stuðningsmönnum í síðustu viku. Pierre Poilievre, leiðtogi Íhaldsflokksins og þingmaður Alberta, sagði að íbúar fylkisins væru ekki bleyður og hvatti þá sem íhuguðu að refsa ríkisstjórninni, með því að kjósa aðskilnað, að hugsa sig um því Kanada væri meira en ríkisstjórnin. Fulltrúar aðskilnaðarhreyfingarinnar sögðu í viðtali við Guardian þegar úrslitin voru ljós að sjálfstæðisbaráttan myndi halda áfram. Forsætisráðherra Alberta, Danielle Smith, sótti völd sín að stórum hluta til aðskilnaðarsinna innan Sameinaða íhaldsflokksins (UCP) en hún hefur reynt að sætta fylkingar aðskilnaðarsinna og sambandssinna innan hans. Hún lýsti því yfir fyrir kosningar að hún myndi kjósa með áframhaldandi veru í Kanada en myndi ekki krefjast þess af kjörnum fulltrúum flokksins. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur reynst flokknum pólitískur baggi og hefur fylgi hans hrunið á undanförnum mánuðum.
Kanada Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira