Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Ráðamenn í Rússlandi gefa lítið fyrir þau ummæli Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um að Úkraínumenn geti sigrað Rússa. Rússar muni sigra Úkraínu, af því þeir eigi engra annarra kosta völ og ætla þeir því ekki að hætta hernaði sínum í Úkraínu fyrr en markmiðum þeirra hafi verið náð. Erlent 24.9.2025 10:38
Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Rússa í afar erfiðri stöðu efnahagslega. Áralangt stríð hafi ekki skilað þeim neinu og aðeins afhjúpað hernaðarlega veikleika þeirra. Erlent 24.9.2025 06:26
Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Joe Biden, forvera sinn, og ráðamenn víða um heim í langri og slitróttri ræðu sem hann hélt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Meðal annars sagði hann að mörg ríki heims „væru að fara til helvítis“. Erlent 23.9.2025 16:03
Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Skoðun 23.9.2025 09:30
Segir Pútín hafa valdið sér „miklum vonbrigðum“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Vladimír Pútín, kollegi hans í Rússlandi, hafi valdið sér miklum vonbrigðum síðan Trump varð aftur forseti. Það væri vegna þess hve erfitt hefði verið að fá Pútín til að láta af árásum sínum á Úkraínu og semja um frið. Erlent 18. september 2025 15:56
Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Saksóknarar í Litháen segjast hafa svipt hulunni af hópi manna tengdum Rússlandi sem skipulagt hafi og framkvæmt íkveikjuárásir víðsvegar um Evrópu. Einhverjir mannanna hafa verið handteknir en þeir eru meðal annars grunaðir um að senda eldsprengjur um borð í flugvélar DHL á vegum Leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Erlent 18. september 2025 14:09
Milljarðar evra streyma enn til Pútíns Milljarðar evra streyma enn í fjárhirzlur Rússlands frá ríkjum Evrópusambandsins fyrir rússneska olíu og gas þrátt fyrir að gripið hafi verið til aðgerða til þess að draga úr í þeim efnum í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Skoðun 17. september 2025 07:01
Nálægt því að draga úr flæðinu vegna drónaárása Forsvarsmenn opinbers rússnesks félags sem rekur olíuleiðslur þar í landi hefur varað framleiðendur við því að þeir gætu þurft draga úr flæðinu vegna drónaárása. Úkraínumenn hafa lagt sérstaka áherslu á árásir á innviði olíuframleiðslu í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 16. september 2025 16:27
Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Ítalskur dómstóll gaf grænt ljós á framsal úkraínsks karlmanns sem er grunaður um aðild að skemmdarverkunum á Nord Stream-gasleiðslunum í Eystrasalti í dag. Lögmenn hans segjast ætla að nýta áfrýjunarrétt til þess ítrasta. Erlent 16. september 2025 10:56
NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Atlantshafsbandalagið og Rússland eiga „augljóslega“ í stríði. Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, við blaðamenn í Moskvu í morgun. Stuðningur margra ríkja NATO við Úkraínu jafngilti að bandalagið væri í raun og veru stríð við Rússland. Það væri augljóst að stríðsástand ríkti. Erlent 15. september 2025 15:46
Stórauka útgjöld til varnarmála Ríkisstjórn Svíþjóðar tilkynnti í morgun að fjárútlát til varnarmála yrðu stóraukin á næsta ári um 26,6 milljarða sænskra króna. Þannig munu fjárútlátin fara úr 148 milljörðum í um 175 milljarða eða um 2,8 prósent af vergri landsframleiðslu Svíþjóðar. Erlent 15. september 2025 13:33
Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Rússneskur dómstóll hefur dæmt nokkra meðlimi listahópsins Pussy Riot til langrar fangelsisvistar fyrir að vanvirða rússneska herinn. Þar á meðal er Mariia Alekhina, eða Masha, sem er íslenskur ríkisborgari. Fimm konur voru dæmdar í morgun en engin þeirra er í Rússlandi. Erlent 15. september 2025 11:09
Kalla rússneska sendiherrann á teppið Rúmenar kölluðu rússneska sendiherrann á teppið eftir að rússnesk flygildi rufu rúmenska lofthelgi í gær og þar með Atlantshafsbandalagsins. Litið er á atvikið og svipað atvik í Póllandi fyrr í vikunni sem ögrun af hálfu Rússa. Erlent 14. september 2025 19:12
Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Rússnesk fylgildi rufu lofthelgi Rúmeníu í dag. Þau fóru að sögn úkraínskra stjórnvalda um það bil tíu kílómetra inn fyrir landamæri Rúmeníu og voru þar í um fimmtíu mínútur. Erlent 13. september 2025 19:44
Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Úkraínumenn gerðu í dag flygildaárás á eina stærstu olíuvinnslustöð Rússlands. Haft er eftir rússneskum embættismönnum að eldur hafi kviknað út frá sprengingunni en að tjónið sé minniháttar. Erlent 13. september 2025 18:07
Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist tilbúinn að ráðast í þungar refsiaðgerðir gegn Rússlandi ef öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hætta að kaupa olíu af Rússlandi. Tyrkland er eitt af stærstu kaupendum rússneskrar olíu. Erlent 13. september 2025 16:40
Fjórtán áherslur í varnar- og öryggismálum: „Öryggisógnin er raunveruleg og aðkallandi“ Fjórtán lykiláherslur Íslands í öryggis- og varnarmálum eru skilgreindar í nýrri skýrslu samráðshóps þingmanna sem lagt er til að hafðar verði að leiðarljósi við mótun varnar- og öryggisstefnu fyrir Ísland. Raunveruleg og aðkallandi öryggisógn steðji að Íslandi sem beri að taka alvarlega. Meðal annars er lagt til að ráðist verið í endurskoðun varnarlaga og skoðað hvort setja eigi sérstaka öryggislöggjöf á Íslandi. Innlent 12. september 2025 09:51
Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Úkraínumenn hafa um árabil varist svo gott sem daglegum árásum Rússa með sjálfsprengidróna og eldflaugar. Til þessa notast þeir marglaga varnir en þróun þessara varna hefur að miklu leyti gengið út á að draga eins og hægt er úr kostnaði við varnirnar en drónarnir eru tiltölulega ódýrir í framleiðslu og flugskeyti í loftvarnarkerfi og herþotur eru það alls ekki. Erlent 11. september 2025 18:53
Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Íslenskum flugmálayfirvöldum bárust fyrst tilkynningar um afskipti af staðsetningarbúnaði flugvéla árið 2023. Þá var tilkynnt um sex atvik en tilkynningum hefur fjölgað verulega síðan. Innlent 11. september 2025 10:54
Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Boðað verður til neyðarfundar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að beiðni Pólverja, aðgerða Rússa innan pólskar lofthelgi. Enn stendur yfir rannsókn vegna rússnesku drónanna sem sendir voru inn fyrir pólska lofthelgi í fyrrinótt, en nokkrir þeirra voru skotnir niður. Erlent 11. september 2025 09:42
Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Einbeittur brotavilji Rússa er mikið áhyggjuefni, segir sendiherra Íslands í Póllandi. Hann telur yfirlýsingar stjórnvalda í Moskvu um að atburðir næturinnar hafi verið óviljaverk vera ótrúverðugar. Innlent 10. september 2025 19:07
Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Pólverjar hafa ekki verið nær stríði frá seinni heimstyrjöld segir forsætisráðherra landsins eftir að rússneskir drónar voru skotnir niður í lofthelgi þeirra í nótt. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir mögulegt að Rússar séu að láta reyna á staðfestu og einungu innan Atlantshafsbandalandsins. Innlent 10. september 2025 11:58
Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Forsætisráðherra Póllands segir að landið hafi ekki verið nær því að lenda í opnum stríðsátökum frá því í síðari heimsstyrjöldinni eftir að rússneskir drónar voru skotnir niður þar í nótt. Rússar hafi farið yfir strikið. Erlent 10. september 2025 11:24
Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Ráðamenn í Rússlandi hafa sífellt meiri áhyggjur af því hvaða áhrif hundruð þúsunda uppgjafahermanna sem snúa aftur frá innrásinni í Úkraínu muni hafa í Rússlandi. Meðal þess sem þeir óttast er að uppgjafahermenn muni ýta undir glæpastarfsemi og óöld í Rússlandi og stendur til að reyna að koma mörgum þeirra í opinber störf. Erlent 9. september 2025 23:04
Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Að minnsta kosti 24 eru látnir og nítján særðir eftir að rússnesk svifsprengja lenti á þorpi í austanverðri Úkraínu dag. Fólkið sem lést og særðist beið í röð eftir að fá mánaðarlegan lífeyri sinn. Erlent 9. september 2025 14:57