„Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. október 2026 21:37 DeAndre Kane skilaði sínu í kvöld. Vísir/Guðmundur DeAndre Kane átti stórfínan leik fyrir Grindvíkinga er liðið vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Bónus-deild karla í kvöld. „
Þetta var góð tilfinning. Gott að komast aftur á gólfið í Grindavík,“ sagði Kane í viðtali í leikslok. „Það var hræðilegt hvernig við töpuðum gegn Breiðablik um daginn. Ég verð að hrósa þeim því þeir mættu og spiluðu af mikilli orku sem við gátum ekki haldið í við. Það var niðurlægjandi tap og þjálfarinn lét okkur heyra það fyrir þá frammistöðu. Þannig okkur langaði virkilega að mæta og sýna hvað í okkur býr í kvöld. Fyrir okkur og fyrir okkar stuðningsfólk. Við vildum bara spila vel í kvöld.“ Persónuleg mál sem hann ræðir ekki strax Sjálfur var Kane mikið milli tannanna á fólki í aðdraganda tímabilsins sökum þess að Grindvíkingar náðu ekki í hann og á tímabili var tvísýnt að hann myndi yfir höfuð mæta til landsins. Kane mætti þó loks til landsins síðustu helgi, en hann hafði ekki áhuga á því að tjá sig of mikið um þessi mál. „Þetta voru bara persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við. Fólk getur sagt það sem það vill og haft sínar skoðanir, en ég er mættur núna.“ Þá segir hann það hins vegar góða tilfinningu að vera mættur og að hafa getað hjálpað liðinu að sækja sinn fyrsta sigur á tímabilinu. „Klárlega. Þetta eru mínir strákar. Strákar sem ég er búinn að vera með í fjögur ár og mig langar ekki að spila fyrir neitt annað lið. Að koma aftur hingað og byrja aftur að vinna var allt sem mig langaði að gera. Það tók smá tíma, en eins og ég sagði þá er ég mættur núna og við ætlum að koma okkur á rétta braut. Reyna að koma okkur aftur á sigurbraut.“ Að lokum fór Kane stuttlega yfir það sem varð til þess að Grindvíkingar sóttu sigurinn í kvöld. „Stjarnan er með gott lið og við vitum það. Við vitum að þeir eru með mikið af góðum leikmönnum og þeir gefast ekkert upp fyrr en lokaflautið gellur. Þeir eru með frábæra leikmenn, en auðvitað með nýjan þjálfara þannig þeir eru kannski enn aðeins að finna út úr sínu, en ég held að þeir eigi eftir að verða góðir,“ sagði Kane. „Við spiluðum það sem við vildum spila vel. Við vorum ákveðnir og hraðir í okkar leik. Við spiluðum saman og höfðum svolítið gaman og ég held að það hafi hjálpað okkur að sækja þennan sigur,“ sagði Kane að lokum.
Bónus-deild karla Grindavík Stjarnan Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira