Körfubolti

Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tómas og Andri voru tignarlegir í balletinum.
Tómas og Andri voru tignarlegir í balletinum.

Extraleikarnir eru farnir aftur af stað í Körfuboltakvöldi Extra og því fagna margir.

Þessi magnaða íþróttakeppni er á milli þeirra Andra Más Eggertssonar, Nablans, og Tomma Steindórs.

Það er engin þraut ómöguleg fyrir þessa kappa og það sannaðist rækilega er þeir skelltu sér í ballet. Tilþrifin komu mörgum á óvart.

Þetta er annað árið í röð sem þeir taka þátt í leikunum og Nablinn hyggur á hefndir eftir naumt tap á síðustu leiktíð.

Veisluna má sjá hér að neðan.

Klippa: Extraleikarnir: Ballet á stöng



Fleiri fréttir

Sjá meira


×