Körfubolti

Sindri á­fram í sex­tán liða úr­slit

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik hjá Sindra
Frá leik hjá Sindra Sindri/Gunnar Stígur

Sindramenn tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta með öruggum sigri gegn Þór Akureyri í dag. 

Liðin mættust á Akureyri í dag í leik þar sem að Bónus deildar lið Sindra var allan tímann með yfirhöndina og sigldi að lokum heim 25 stiga sigri, 107-82.

Þórsarar leika í 1. deildinni og var ljóst fyrir leik að þeir þyrftu að vera upp á sitt allra besta til að skáka Sindra. 

Kaleb Lamar Higgins var besti leikmaður vallarins með 23 stig. Þá gaf hann tólf stoðsendingar og reif niður sex fráköst. 

Hjá Þórsurum var það Jalen Green sem var stigahæstur með 26 stig. 

32-liða úrslitin halda áfram á morgun með sjö leikjum. Þeim lýkur síðan á mánudaginn kemur. Flestir leikir umferðarinnar eru sýndir á KKÍ TV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×