Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Valur Páll Eiríksson skrifar 15. október 2026 21:54 Jakob Örn þurfti oftar en einu sinni að láta sína menn heyra það í kvöld. Vísir/Guðmundur Jakobi Erni Sigurðarsyni, þjálfara KR, var fyrst og fremst létt eftir 84-73 sigur liðsins á Njarðvík í Bónus deild karla í körfubolta vestur í bæ í kvöld. Segja má að fæðingin hafi verið erfið. „
Við áttum í erfiðleikum stóran hluta leiksins og Njarðvík spilaði vel. Við náðum ekki góðu flæði, náðum aldrei nokkrum stoppum í röð til að ná flæði í okkar leik svo þetta tók tíma,“ segir Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, eftir leik. Njarðvíkingar mættu vængbrotnir til leiks og marga vantaði í liðið. Gestirnir börðust hins vegar eins og ljón og settu KR-inga í mikil vandræði stærstan part. Það kom að því að blaðran sprakk í fjórða leikhluta og þá komst KR yfir í leiknum í fyrsta sinn síðan í blábyrjun. Forystuna lét liðið ekki af hendi og sigurinn aldrei í hættu á seinni hluta fjórða leikhluta. „Mér fannst vandamálið aðallega vera vörnin, en þetta er vissulega bæði, en um leið og vörnin kom, þá kom sóknin aðeins betur. Svo vorum við bara að tapa alltof mörgum boltum og vorum ekki að skjóta vel. En seinni hálfleikur var töluvert betri,“ segir Jakob enn fremur um leikinn. „Það tók svolítinn tíma að þreyta þá og ná svolitlum tökum á leiknum. Það kom í fjórða leikhluta. Reynir var frábær fyrir okkur í fjórða, hann kom inn og setti svolítið tóninn og annað fylgdi með,“ segir Jakob og vísar þar til Reynis Bjarkan Barðdal Róbertssonar sem tókst ekki að skora á 17 mínútum í kvöld en á þó hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Sigri KR líkti að mörgu leyti til sigurs liðsins í Grindavík fyrir viku síðan í fyrstu umferðinni. Andstæðingnum tókst að hægja á hröðum leik KR og þeir eltu leikinn stærstan part. Illa gekk að skora þegar sótt var á hálfan völl, eftir að andstæðingurinn, hvrot sem var Grindavík eða Njarðvík, hafði tekist að stilla upp í vörn og skotnýtingin ekki frábær. Svo tókst KR-ingum að keyra hraðann upp í lokin og keyra yfir andstæðinginn og það skilaði sigri. En er sóknarleikurinn á hálfan völl áhyggjuefni? „Það er klárlega eitthvað sem við þurfum að verða betri í. Ég er mjög meðvitaður um það. Á sama tíma líður mér mjög vel þegar við náðum að hraða upp leikinn. Ég hef ekki enn séð lið sem nær að stoppa okkur. En ég og liðið erum mjög meðvitaðir um þetta tvennt að við þurfum að vera betri varnarlega og á hálfum velli,“ „En það er hægt að spila hratt á hálfum velli. Hratt þýðir ekki endilega bara upp og niður. Á hálfum velli þegar við erum að hreyfa boltann og hlaupa í screen og allt það, það getur líka verið hratt og það þurfum við að gera betur á hálfum velli,“ segir Jakob.
Bónus-deild karla KR UMF Njarðvík Körfubolti Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bo Johansson er látinn Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Sjá meira