KR

KR

Fréttir af Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá Reykjavík.

Fréttamynd

„Hverjir í fjandanum eru í marka­nefnd?“

Markametið í efstu deild karla í fótbolta var til umræðu í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Þar var staðfest að Aron Sigurðarson hefur ekki jafnað markametið líkt og talið var í fyrstu. KSÍ tók af honum mark sem hann skoraði gegn Fram á dögunum.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kefla­vík - KR 2-3 | Gabríel gull­tryggði annað sæti

KR tryggði sér annað sætið í Bestu deild karla með dramatískum 3-2 sigri á Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. KR-ingar komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu metin eftir hlé áður en Gabríel Hrannar Eyjólfsson tryggði gestunum sigurinn á 89. mínútu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Í fyrsta sinn sem við vinnum ó­sann­gjarnt“

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að barátta og seigla hafi skilað stigunum þremur á móti Fram í rimmu liðanna í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. KR-liðið hafi í fyrsta skipti í sumar innbyrt sigur sem liðið átti sennilega ekki skilið. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta var alltaf mitt mark“

Áhöld eru um hvort Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hafi skorað fyrra mark liðsins þegar liðið vann Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld og þar af leiðandi jafnað markamet Benónýs Breka Andréssonar í efstu deild. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Það er aldrei logn­molla í kringum Óskar“

Mikil barátta er um annað sætið í Bestu deild karla og mætast liðin í þeirri baráttu í kvöld. KR er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið fer í heimsókn til Fram í kvöld þar sem Framarar eru einu stigi fyrir neðan KR í þriðja sætinu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Náðum að auka tempóið í seinni hálf­leik“

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við kafla í leik sinna manna þegar liðið bar sigurorð af Grindavík í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Seinni hálfleikurinn og tempóið þar hafi verið meira að hans skapi. 

Körfubolti
Fréttamynd

Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum

Keppni hefst í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld og búist við mikilli spennu meðal bestu liða landsins. Álftanes hefur farið hamförum á markaðnum í sumar og Tindastóll er sem fyrr með gríðarsterkt lið. KR og Stjarnan mæta einnig öflug til leiks.

Körfubolti
Fréttamynd

Óðinn heim í KR

Óðinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í morgun.

Sport
Fréttamynd

Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum

Fimmtán og sextán ára stelpur úr KR og HK fengu medalíur merktar strákum eftir úrslitaleik sinn í Vesturbænum í gær, í Íslandsmóti B-liða í 3. flokki. Framkvæmdastjóri KSÍ biður leikmenn og félögin afsökunar en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem mistök verða í verðlaunaafhendingu hjá íslenskum fótboltastelpum.

Fótbolti
Fréttamynd

Sárnar að vera bendlaður við líkams­á­rás

Zoltán Belányi, sundþjálfara hjá KR, sárnar að hafa ítrekað verið tengdur við líkamsárás í síðustu viku. Hann er ekki viðriðinn málið og segir að tengingin sé skaðleg fyrir mannorð sitt og orðspor.

Innlent
Fréttamynd

Mattías Kjeld valdi KR

Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili.

Íslenski boltinn