Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2026 10:29 Garðar Páll Gíslason formaður sunddeildar KR tekur í höndina á nýjum yfirþjálfara, Inga Þór Ágútssyni reynslubolta. KR Sunddeild KR hefur ráðið nýjan yfirþjálfara deildarinnar eftir að fyrrverandi yfirþjálfari var handtekinn grunaður um líkamsárás á sundþjálfara Gróttu á dögunum.
Tvær og hálf vika er síðan forsvarsmenn sundfélaga og þjálfara um allt Ísland komu saman til fundar í húsakynnum ÍSÍ í Laugardalnum. Þar lágu leiðir yfirþjálfara KR og yfirþjálfara Gróttu saman. Samkvæmt heimildum Vísis réðst sá fyrrnefndi á kollega sinn með nokkrum höggum áður en hann greip til hnífs. Í framhaldinu var lögregla kölluð til sem stöðvaði þáverandi yfirþjálfara KR í umferðinni með því að aka utan í bíl hans og þannig taka hann úr umferð. Í tilkynningu frá KR kom fram að málið væri á viðkvæmu stigi og til meðferðar hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Nafn þjálfarans sem sakaður er um ofbeldi var fjarlægt af heimasíðu KR sem varð til þess að eftir stóð nafn eins sundþjálfara sem hafði ekkert með málið að gera. Sá heitir Zoltán Belányi og sárnaði mjög að vera bendlaður við málið. Nokkur óvissa hefur verið uppi hjá sundiðkendum í Vesturbænum vegna málsins enda var yfirþjálfarinn fyrrverandi í stóru hlutverki og samkvæmt heimildum Vísis almennt vel liðinn af foreldrum og iðkendum. Nú hefur skarð hans verið fyllt. „Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Ingi Þór Ágústsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari Sunddeildar KR,“ segir í tilkynningu KR-inga. „Ingi Þór kemur til okkar með yfir þrjátíu ára reynslu af sundþjálfun og víðtæka reynslu af uppbyggingu sundstarfs. Hann hefur meðal annars gegnt starfi yfirþjálfara hjá Vestra, Breiðabliki og Sundfélaginu Óðni, auk þess að hafa þjálfað hjá öðrum sundfélögum. Hann þekkir jafnframt KR vel frá fyrri tíð.“ Reynsla Inga Þórs nái langt út fyrir bakkann. „Hann hefur setið í stjórn Sundsambands Íslands og landsliðsnefnd SSÍ, auk þess að hafa setið um árabil í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Á Sundþingi 2025 var hann sæmdur gullmerki SSÍ fyrir margvísleg störf í þágu sundíþróttarinnar á Íslandi. Með ráðningu Inga Þórs tekur Sunddeild KR mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar, með fagmennsku, stöðugleika og metnað að leiðarljósi. Við hlökkum mikið til samstarfsins og bjóðum Inga Þór hjartanlega velkominn til KR.“
Sund KR Lögreglumál Tengdar fréttir KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru. 18. september 2026 18:34 Mest lesið Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Tindastóll - Valur | Heimsækja erfiðan útivöll Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjá meira
KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru. 18. september 2026 18:34