Íslenski boltinn

„Hverjir í fjandanum eru í marka­nefnd?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guðmundur Benediktsson velti fyrir sér markanefnd KSÍ sem tók eitt mark af Aroni Sigurðarssyni sem eltir markamet í deildinni.
Guðmundur Benediktsson velti fyrir sér markanefnd KSÍ sem tók eitt mark af Aroni Sigurðarssyni sem eltir markamet í deildinni. Samsett/Sýn Sport/Vísir

Markametið í efstu deild karla í fótbolta var til umræðu í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Þar var staðfest að Aron Sigurðarson hefur ekki jafnað markametið líkt og talið var í fyrstu. KSÍ tók af honum mark sem hann skoraði gegn Fram á dögunum.

Mark Arons gegn Fram í þarsíðustu umferð var tekið af honum og þar af leiðandi hefur hann aðeins skorað 20 mörk í deildinni, en ekki 21 mark. Markanefnd KSÍ tók markið af Aroni, þar sem skot hans sem fór af Kennie Chopart og í netið var á leið framhjá og það því skráð sem sjálfsmark.

Klippa: Ræddu Aron og markametið: „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“

„Hverjir í fjandanum eru í markanefnd? Og hvernig kemst maður í markanefnd? Ég hef aldrei heyrt um neinn aðila eða hitt neinn sem er í markanefnd,“ sagði Guðmundur Benediktsson, þáttastjórnandi Stúkunnar í gær.

Markametið stendur í 21 marki sem Benoný Breki Andrésson skoraði árið 2024 fyrir KR-inga. Aron þarf því að skora tvö mörk fyrir KR í lokaumferð deildarinnar við Breiðablik á KR-velli næstu helgi.

Baldur Sigurðsson sagðist í þætti Stúkunnar í gærkvöld hafa trú á því að hann muni bæta metið í leiknum um næstu helgi.

„Það kæmi mér ekkert á óvart að hann myndi bæta þetta, og setja tvö,“ sagði Baldur í umræðu um Aron og markametið.

„Ég hélt hann myndi slá þetta fyrir þónokkrum umferðum,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, meðal annars í þættinum.

Aron hefur spilað sex leiki í röð án þess að skora, eftir að hann skoraði þrjú mörk gegn KA þann 23. Ágúst síðastliðinn. Sú þrenna kom honum í 20 mörkin sem er enn markafjöldi hans í deildinni.

Umræðu um markametið og Aron má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×