Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmark KR í gærkvöld.
Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmark KR í gærkvöld. vísir/Hulda Margrét

Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í gær. ÍBV féll úr deildinni, FH bjargaði sér og Akureyrarliðin heyja áfram harða baráttu. KR fór langt með að tryggja sér annað sætið.

Fram 1-2 KR

Einn leikur fór fram í efri hluta Bestu deildar karla í gær. KR vann 2-1 sigur á Fram í nánast hreinum úrslitaleik um annað sæti deildarinnar.

Þór 1-0 ÍBV

Þór vann slag botnliðanna í hatrömmum slag á Akureyri. Sigur Þórsarar felldi ÍBV og hélt þá jafnframt Akureyringum á lífi.

Valur 3-5 FH

Gils Gíslason skoraði þrennu í sigri FH-inga á Val á Hlíðarenda. Sigurinn tryggði sæti FH í deildinni og Hafnfirðingar hefðu hæglega getað unnið stærra.

Stjarnan 0-3 KA

KA-menn unnu mikilvægan sigur sem hélt þeim ofan fallsvæðisins. Í ljósi sigurs Þórsara var sigurinn þeim mun mikilvægari og ljóst að annað Akureyrarliðanna mun falla með ÍBV í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×