Fram

Fram

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Fram í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Upp­gjörið: Fram - Aftur­elding 24-42 | Niður­læging í Úlfarsárdal

Fram var niðurlægt á heimavelli í kvöld í Olís-deildinni. Gestirnir í Aftureldingu gjörsamlega völtuðu yfir heimamenn sem gátu ekki spilað vörn fyrir sitt litla líf, en staðan í hálfleik var 15-22. Lokatölur 24-42 og Fram að tapa þriðja leiknum í röð á meðan Mosfellingar vinna sinn þriðja sigur á tímabilinu og eru komnir í þriðja sæti deildarinnar.

Handbolti
Fréttamynd

„Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“

„Bara ákveðinn léttir og virkilega ánægður með að við leikum í deildinni á næsta ári“, sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, strax eftir 2-1 sigur á útivelli gegn Þór/KA sem tryggir liðinu áframhaldandi veru í Bestu deildinni þegar ein umferð er óleikin í neðri hluta deildarinnar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Gaman að fara í svona úrslitaleiki“

Fram sótti 2-1 sigur norður yfir heiðar gegn Þór/KA í neðri hluta Bestu deildar karla og tryggði þar með áfram veru sína í Bestu deildinni að ári þegar ein umferð er eftir. Þór/KA þarf að bíða með örlög sín fram í lokaumferðina.

Sport
Fréttamynd

ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur

Einn leikur fór fram í Olís-deild karla í dag þegar Fram tók á móti ÍBV. Fram mistókst að viðhalda fullkominni byrjun á mótinu því ÍBV náði í mikilvægan 33-30 sigur á erfiðum útivelli.

Handbolti
Fréttamynd

Ó­fært frá Eyjum og leiknum frestað

Lægð yfir suðvesturhorninu gerir að verkum að ófært er til og frá Vestmannaeyjum. Leik Fram og ÍBV í Olís-deild karla í handbolta sem átti að fara fram í kvöld hefur því verið frestað.

Handbolti