Handbolti

Topp­lið Hauka burstaði Fram í Lamb­haga­höllinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Aronsson var með átta mörk og þrjár stoðsendingar í sigrinum á Fram í kvöld.
Freyr Aronsson var með átta mörk og þrjár stoðsendingar í sigrinum á Fram í kvöld. Vísir/Anton

Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís deild karla í handbolta með því að fara illa með Framara í Lambhagahöllinni í kvöld.

Haukaliðið vann leikinn með sextán marka mun, 39-23, og hefur því unnið fyrstu sjö deildarleiki sína á tímabilinu.

Haukarnir tóku öll völd frá byrjun og voru 20-10 yfir í hálfleik.

Skarphéðinn Ívar Einarsson og Freyr Aronsson skoruðu báðir átta mörk fyrir Hauka og gáfu saman fimm stoðsendingar. Sigurður Jefferson Guarino skoraði fimm mörk af línunni og hornamennirnir Sigurður Snær Sigurjónsson og Andri Fannar Elísson voru með fjögur mörk hvor.

Haukur Ingi Hauksson var markahæstur með átta mörk en þeir Steinar Már Einarsson Clausen og Ívar Logi Styrmisson skoruðu þrjú mörk hvor.

Þetta var fimmti tapleikur Fram í röð en þeir hafa tapað öllum leikjum sínum síðan þeir unnu Valsmenn á Hlíðarenda 11. september.

Haukar hafa fullt hús og eru með fimm stiga forskot á Aftureldingu og FH sem eiga bæði leik inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×