Handbolti

HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki

Andri Broddason skrifar
HK komst í Olís-deildina eftir að hafa unnið Grill 66-deildina á síðasta tímabili.
HK komst í Olís-deildina eftir að hafa unnið Grill 66-deildina á síðasta tímabili. Vilhelm/Vísir

Stjarnan tók á móti HK í sjöttu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. HK náði að knýja fram dramatískan sigur 21-20 og var þetta fyrsti sigur liðsins í deildinni.

Leikurinn var gríðarlega jafn og skoruðu liðin nánast alltaf til skiptis. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan jöfn 10-10 og ljóst að spennan myndi halda áfram í seinni hálfleiknum.

Það reyndist vera rétt þar sem liðin reyndu að stinga hvort annað af en það heppnaðist ekki. Staðan var enn jöfn þegar aðeins ein mínúta var eftir af leiknum.

HK var í sókn og var Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir komin í fínt færi þegar Fruzina Nagy braut harkalega á henni. Fyrir það fékk hún rautt spjald og dæmt var víti og staðan leit ekki vel út fyrir heimakonur í Stjörnunni.

Inga Fanney Hauksdóttir fór á vítapunktinn og skoraði og náði HK forystunni rétt fyrir lokin. Stjarnan hafði tæpa mínútu til að jafna metin en liðið var leikmanni færri heldur en HK. Að lokum komst Stjarnan ekki í gott skotfæri og náði Elísabet Millý Elíasardóttir að verja skotið og fyrsti sigur HK á tímabilinu kom í hús.

Sara Rún Gísladóttir og Inga María Roysdóttir, leikmenn Stjörnunnar, voru markahæstu leikmenn leiksins með sex mörk. Tinna Ósk Gunnarsdóttir var markahæst hjá HK en hún skoraði fimm mörk. Danijela Sara B. Björnsdóttir átti frábæran leik í marki HK þar sem hún varði 13 skot sem endaði á að vera mikilvægt í jöfnum leik.

Upplýsingar um leikinn voru fengnar af hbstatz.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×