„Sigurinn nærir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2026 21:37 Einar Jónsson, þjálfari Fram. vísir „Ég er fyrst og fremst bara ógeðslega ánægður með að ná í tvö stig,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir sex marka sigur liðsins gegn Selfyssingum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. „
Það er langt síðan við náðum í tvö stig síðast. Mér fannst frammistaðan á löngum köflum bara mjög góð því það er mjög erfitt að spila á móti Selfyssingum, sérstaklega hérna á Selfossi. Ég hefði viljað skora fleiri mörk því mér fannst við yfirspila þá hérna á köflum, en mér fannst markmaðurinn hjá þeim halda þeim svolítið inni í þessu í seinni hálfleik,“ bætti Einar við. „Svo vorum við kannski orðnir svolítið þreyttir líka. Erum með lykilmenn sem hafa lítið æft undanfarið sökum meiðsla þannig að á köflum vorum við kærulausir, þreyttir og agalausir á örstuttum kafla. Svo náum við vopnum okkar og klárum þetta nokkuð sannfærandi.“ Framarar höfðu yfirhöndina svo gott sem allan leikinn, en Selfyssingar áttu þó góð áhlaup þar sem þeir ógnuðu forskoti Framara. „Við fórum kannski bara aftur í að spila það sem við vorum að spila þegar gekk vel. Við vorum klaufalegir í nokkrum brotum sem gerði það að verkum að við vorum svolítið oft einum færri. En á meðan við héldum okkur inni á vellinum, sex á sex, þá fannst mér við hafa tökin á þessu,“ sagði Einar. „Svo kemur einhver kafli hérna, einhver 3-4 mínútna kafli þar sem hvorugt liðið gat spilað. Boltinn fer bara eitthvað, út og suður og ég veit ekki hvað. En þrátt fyrir kannski tvo kafla þar sem við duttum aðeins niður er ég ánægður með karakterinn að halda haus. Við klárum þetta vel því við erum búnir að tapa einhverjum sex eða sjö í röð og einhver lið hefðu brotnað. Við bognuðum, en brotnuðum ekki, og héldum áfram og sýndum ákveðin gæði. Það er ekkert sjálfgefið að vinna Selfoss hérna á Selfossi og ég er mjög þakklátur fyrir það. Ég sagði við strákana að það eina sem við hugsum um í kvöld væri að ná í tvö stig og það er fyrst og fremst það sem ég er ánægður með. Svo getum við tekið kvöldið eða morgundaginn í það að fara eitthvað að greina það sem hefði mátt fara betur.“ Hann segir þó að það sé ýmislegt jákvætt sem liðið geti tekið með sér inn í framhaldið. „Við getum tekið frammistöðuna með okkur, sem mér fannst að mestu leyti bara mjög góð, varnarlega, sóknarlega og markvarslan. Svo tökum við það með okkur að sigurinn nærir og það er það sem kemur til með að létta aðeins æfingavikuna fram að næsta leik. Við þurfum virkilega á því að halda og við verðum að vera einbeittir á næsta verkefni því það er stutt í það. En ég hugsa, og vona, að þetta geri mjög mikið fyrir okkur því þetta er búinn að vera erfiður tími,“ sagði Einar að lokum.
Olís-deild karla UMF Selfoss Fram Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira