Handbolti

Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan septem­ber

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daninn Bertram Simonsen var markahæstur hjá Þórsurum í kvöld.
Daninn Bertram Simonsen var markahæstur hjá Þórsurum í kvöld. @thorhandbolti

Þór Akureyri og Víkingur unnu leiki sína í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Þórsarar unnu fimm marka heimasigur á Stjörnunni en Víkingar sóttu tvö stig á Selfoss.

Þórsarar unnu 37-32 sigur á Stjörnunni og komust fyrir vikið upp fyrir þá og í sjöunda sætið. Þetta var fyrsti deildarsigur Þórsara síðan 16. september en liðið hafði tapað þremur deildarleikjum í röð.

Stjarnan var marki yfir í hálfleik, 17-16, en Þórsarar unnu seinni hálfleikinn 21-15.

Bertram Simonsen skoraði sjö mörk fyrir Þór og Hafþór Már Vignisson var með sex mörk. Mikkel Bak Scheumann Jensen og Þórður Tandri Ágústsson skoruðu báðir fimm mörk.

Ísak Logi Einarsson skoraði ellefu mörk fyrir Stjörnuna og þeir Matthías Dagur Þorsteinsson og Tandri Már Konráðsson fimm mörk hvor.

Víkingar unnu sex marka útisigur á botnliði Selfoss, 34-28. Víkingar hafa unnið tvo af fyrstu sjö leikjum sínum og sitja í níunda sætinu.

Sigurður Páll Matthíasson skoraði ellefu mörk úr tólf skotum fyrir Víkinga, Jón Karl Einarsson var með sex mörk og Gunnar Hrafn Pálsson skoraði fimm mörk. Ísak Óli Eggertsson skoraði þrjú mörk en gaf einnig sex stoðsendingar. Rökkvi Pacheco Steinunnarson varði 19 skot í markinu samkvæmt HB Statz.

Hákon Garri Gestsson, Anton Breki Hjaltason og Hannes Höskuldsson skoruðu allir sex mörk fyrir Selfossliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×