Íslenski boltinn

ÍA fékk skömm í hattinn en undir­býr byltingu

Sindri Sverrisson skrifar
Búið er að spila síðasta leikinn á Elkem-vellinum sem grasvelli og ÍA mun í framtíðinni spila sína heimaleiki á gervigrasi. Félagið þarf þó að leita annað stóran hluta næstu leiktíðar.
Búið er að spila síðasta leikinn á Elkem-vellinum sem grasvelli og ÍA mun í framtíðinni spila sína heimaleiki á gervigrasi. Félagið þarf þó að leita annað stóran hluta næstu leiktíðar. Samsett/Anton/Diego

Skagamenn vinna nú að því að gera aðalfótboltavöll sinn að gervigrasvelli og ljóst er að þeir munu þurfa að leita í annað bæjarfélag til að spila sína leiki í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Þeir fengu ákúrur frá mótanefnd KSÍ fyrir að hafa gert völlinn óleikhæfan fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í ár.

„Þetta verður bylting fyrir félagið,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri KFÍA, um nýja gervigrasvöllinn sem lagður verður á næsta ári. Með tilkomu hans verði aðstaða til að spila fótbolta á Akranesi yfir vetrarmánuðina allt önnur.

Óvissa ríkir hins vegar um hve langan tíma mun taka að leggja nýjan völl og til að draga úr þeirri óvissu voru gerðar mælingar í nýafstöðnu landsleikjahléi, þar sem borað var ofan í völlinn til að kanna hve langt væri niður á fast land. Ingimar segir þetta gert til að meta hvort setja þurfi „fljótandi púða“ undir nýja völlinn en það sé óþarfi ef nógu stutt sé niður á fast land.

„Þetta gæti stytt framkvæmdatímann hérna um 4–6 mánuði. Þetta eru mjög mikilvægar upplýsingar fyrir okkur og Akranesbæ að hafa fyrir sína áætlanagerð.“

Prufuholurnar á vellinum gerðu hann hins vegar óleikhæfan fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, þegar ÍA tekur á móti Keflavík á laugardaginn, og hefur mótanefnd KSÍ samþykkt að sá leikur fari fram í Akraneshöllinni.

Í grein Fótbolta.net í dag er vísað í bréf frá mótanefnd KSÍ til ÍA og Keflavíkur þar sem vinnubrögð Skagamanna eru hörmuð. Þar segir mótanefnd það „mannanna verk“ að völlurinn sé ekki leikhæfur og gagnrýnir hún samráðsleysi við KSÍ. Nefndin var ekki einhuga varðandi það að samþykkja að leikurinn færi fram í Akraneshöllinni.

Mikilvægar mælingar til að halda verkefninu á hreyfingu

Ingimar sýnir viðbrögðum nefndarinnar skilning en segir forráðamenn ÍA hafa talið það mikilvægt að bíða ekki með að taka prufuholurnar:

„Við erum í vinnu með bænum við að koma upp gervigrasvelli á næsta ári og sú vinna er búin að vera í gangi í nokkra mánuði. Það skapaðist töluvert hlé vegna landsleikjanna og þá sáum við færi á að taka prufuholur sem geta skorið úr um hversu kostnaðarsamt verkefnið verður og hversu langur framkvæmdatíminn verður. Þessar mælingar eru mjög mikilvægar til að halda verkefninu gangandi, á sama tíma og bærinn er í framkvæmda- og fjárhagsáætlun.

Því miður var þessi vinna við völlinn umtalsvert meiri en við gerðum ráð fyrir. Í fyrstu ætluðum við bara að taka holur utan við leikflötinn en síðan var það mikilvægt fyrir verkfræðistofuna að tekin yrðu líka sýni inni á vellinum til að fá betri niðurstöður um rúmmálið í jarðveginum undir vellinum. Á þessum tíma var völlurinn mjög blautur og þoldi illa að fá tæki inn á sig. Núna er hann óleikhæfur og þess vegna sóttum við um að spila inni í Akraneshöllinni,“ segir Ingimar.

Skagamenn eru í 4. sæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar og geta náð sínum besta árangri frá árinu 2007 ef þeir enda ekki neðar.vísir/Anton

En vissu Skagamenn ekki einfaldlega að þeir væru með þessum framkvæmdum að gera völlinn óleikhæfan fyrir lokaumferðina?

„Nei, við vissum það svo sem ekki fyrir fram. En svo er það þannig að þegar það er meðbyr með svona mikilvægri framkvæmd í bæjarpólitíkinni þá er mikilvægt að halda því verkefni á hreyfingu í stað þess að bíða í 4-5 vikur. Við ætluðum í þessar framkvæmdir um leið og síðasta leik lauk fyrir landsleikjahléið en því miður var verktakinn í öðrum verkefnum með Vegagerðinni.

Mér finnst að það megi horfa á heildarmyndina. Þarna er íþróttafélag sem sér fram á að geta bætt sína aðstöðu umtalsvert og er að horfa til framtíðar með að koma upp heilsársaðstöðu,“ segir Ingimar.

Heimaleikir ÍA í Ólafsvík eða Mosfellsbæ?

Eins og fyrr segir verður nýr gervigrasvöllur bylting fyrir fótboltann á Akranesi en sú bylting mun hafa mikil áhrif á næstu leiktíð. Ingimar segir að í besta falli verði hægt að byrja að spila á nýjum gervigrasvelli um mánaðamótin júní-júlí og mögulega verða engir leikir í Bestu deildinni á Akranesi alla næstu leiktíð heldur mun ÍA spila í öðru bæjarfélagi. Ekki er hægt að leggja gervigras nema á tímabilinu apríl-september.

„Svona gervigrasvöllur er það sem vantar upp á hér. Félagið okkar hefur þróast alveg svakalega, ekki bara meistaraflokkarnir heldur öll okkar starfsemi. Yngri flokkarnir hafa stækkað frá 300 iðkendum upp í tæpa 800 á örfáum árum og eina vetraraðstaðan sem við höfum er Akraneshöllin okkar. Hún er löngu sprungin. Þetta verður bylting fyrir félagið.

Við höfum þegar tekið innanhússaðstöðu félagsins í gegn, klefana, líkamsræktina og íþróttahúsið, á síðustu tveimur árum og með nýjum gervigrasvelli verðum við með eina bestu aðstöðuna á landinu,“ segir Ingimar.

Hann segir ekki ljóst hvar ÍA muni spila sína heimaleiki á næstu leiktíð.

„Við erum að skoða það núna. Ég hugsa að það verði allavega ekki Akraneshöllinni,“ segir Ingimar hlæjandi.

„Við þurfum bara að skoða það, hvort sem það verður Ólafsvík, Borgarnes eða Mosfellsbær eða annars staðar,“ segir Ingimar en bætir við að líklegast sé að farið verði í samstarf við félag á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×