Íslenski boltinn

Flauta Péturs á hilluna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Pétur Guðmundsson, löggan, er hættur knattspyrnudómgæslu.
Pétur Guðmundsson, löggan, er hættur knattspyrnudómgæslu. Vísir/Diego

Knattspyrnudómarinn Pétur Guðmundsson dæmdi um helgina sinn síðasta leik á ferlinum. Hann leggur flautuna á hilluna 57 ára gamall.

Fótbolti.net greinir frá. Síðasti leikur Péturs var 5-1 sigur KA á ÍBV á Akureyri í lokaumferð Bestu deildarinnar um liðna helgi.

Pétur er elsti dómari til að dæma í efstu deild hér á landi en árið 2018, þegar Pétur var 49 ára, voru gerðar breytingar á aldurstakmörkunum dómara sem heimilaði mönnum yfir fimmtugt að dæma í leikjum KSÍ.

Pétur var valinn dómari ársins oftar en einu sinni, til að mynda þrjú ár í röð frá 2022 til 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×