Sport

Tvö lið hætt við HM og Spán­verjar hlaupa í appel­sínu­gulri við­vörun

Sindri Sverrisson skrifar
Veðrið á það til að setja svip sinn á bakgarðshlaup hér á landi en einnig víðar í heiminum.
Veðrið á það til að setja svip sinn á bakgarðshlaup hér á landi en einnig víðar í heiminum. Vísir/Viktor Freyr

HM í bakgarðshlaupi hefst klukkan 12 að íslenskum tíma í 66 eða 67 löndum og aðstæður eru auðvitað mismunandi á milli landa. Tvær þjóðir hafa neyðst til að draga sig úr keppni og Spánverjar gerðu það einnig en hafa dregið ákvörðunina til baka.

Íslenska landsliðið hleypur í Elliðaárdalnum og verður bein útsending frá frammistöðu íslensku hlauparanna, sem eru fimmtán talsins, á Vísi. Í bakgarðshlaupi þarf að hlaupa 6,7 kílómetra hring á innan við klukkutíma og safna eins mörgum hringjum og mögulegt er. Samanlagður fjöldi hringja mun svo ákvarða í hvaða sæti Ísland lendir á mótinu.

Lið Singapúr og Máritíus hafa neyðst til að draga sig úr keppni af ólíkum ástæðum en þetta kemur fram á samfélagsmilum heimsmeistaramótsins. Þar segir að sögulega mikil og ofbeldisfull mótmæli hafi staðið yfir í Máritíus en að í Singapúr séu loftgæði óheilbrigð vegna reyks frá eldum í Indónesíu.

Þá er í gildi appelsínugul viðvörun vegna þrumuveðurs og úrhellisrigningar í Cartagena á Spáni en spænska landsliðið segir að búið sé að fá í gegn að liðið megi keppa og að hlaupararnir séu staðráðnir í að taka þátt. Spánn verði því með þegar HM hefst nú í hádeginu þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Veðurspáin í Reykjavík um helgina er ekkert sérstök því spáð er 15-20 m/s og rigningu bæði í dag og á morgun en komist keppendur í gegnum fyrstu tvo sólarhringana bíður þeirra mun skaplegra veður á mánudaginn.

Belgar eru ríkjandi heimsmeistarar eftir að hafa samtals hlaupið 1.147 hringi fyrir tveimur árum. Þrír þeirra settu heimsmet með því að hlaupa 110 hringi hver eða í fjóra og hálfan sólarhring.

Íslendingar urðu þá í 14. sæti með því að hlaupa samtals 595 hringi og setti Þorleifur Þorleifsson þá Íslandsmet sem enn stendur með því að fara 62 hringi. Elísa Kristinsdóttir hljóp þá 61 hring og Marlena Radziszewska 60 hringi en hvorug þeirra er með í ár.

Bein útsending frá keppni Íslands á HM í bakgarðshlaupi hefst á Vísi í hádeginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×