Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Valur Páll Eiríksson skrifar 22. október 2026 10:01 Bruno Fernandes tekur litla ábyrgð á gengi Manchester United, líkt og hefð virðist vera fyrir í félaginu. Getty Krabbamein hefur grasserað hjá Manchester United undanfarinn rúman áratug. Sigursæll Skoti dró úr einkennum þess um árabil en eftir brotthvarf hans gengur bölvanlega fyrir hæstráðendur að finna lækningu við meininu. Manchester United hefur verið í ákveðinni tilvistarkreppu frá árinu 2013, eftir að Sir Alex Ferguson hætti störfum sem sigursælasti stjóri í sögu alþjóðafótboltans. Nýjum botni er náð ár hvert og ekki nema von að menn séu ráðalausir við að finna ráð við sjúkdómi sem dreifir sér um félagið. Frammistaða United gegn Como í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld virðist hafa verið nagli í kistu Michaels Carrick sem stjóra liðsins. Orkulaus frammistaða ráðalausra leikmanna sem virðast engu fremur axla ábyrgð en æðri stjórnendur félagsins. Til marks um hversu slakt liðið var sagði Cesc Fábregas, þjálfari Como, liðs sem var í D-deild á Ítalíu fyrir minna en áratug, leikmönnum sínum að slaka á og spara kraftana í stöðunni 4-0. Hann var farinn að finna til með United-mönnum. Í raun súmmerar frammistaðan ágætlega upp toxískan kúltúr ábyrgðarleysis og skringilegra ákvarðana. Dýrustu leikmenn Manchester United frá 2013 Paul Pogba, 90 milljónir punda frá Juventus, 2016. Antony, 81 milljón punda frá Ajax, 2022. Harry Maguire, 80 milljónir punda frá Leicester, 2019. Romelu Lukaku, 75 milljónir punda frá Everton, 2017. Jadon Sancho, 73 milljónir punda frá Dortmund, 2021. Rasmus Höjlund, 72 milljónir punda frá Atalanta, 2023. Benjamin Sesko, 71 milljón punda frá RB Leipzig, 2025. Carlos Baleba, 70 milljónir punda frá Brighton, 2026. Bryan Mbeumo, 68 milljónir punda frá Brentford, 2025. Ángel Di María, 60 milljónir punda frá Real Madrid, 2014. Íslenski landeigandinn ekki slegið í gegn Margur United-maðurinn fagnaði þegar Sir Jim Ratcliffe, stærsti landeigandi á Íslandi (fyrir utan ríkið, sveitarfélög og Þjóðkirkjuna), reið inn á hvítum hesti og átti að bjarga félaginu sem hann hefur stutt frá æsku undan ofríki bandarískra auðmanna sem hafa verið sem krabbamein á félaginu í áratugi. Glazer-fjölskyldan notaði United sem tól til að taka við eigin uppsöfnuðum skuldum og jók þar með eigin auð á kostnað félagsins. Gjörsamur vanrekstur eigendanna skipti þó almennt ekkert sérlega miklu máli meðan Sir Alex hafði stjórnartaumana og tekjur félagsins almennt það háar á alþjóðavísu að ávallt var til fyrir salt í grautinn þrátt fyrir auknar skuldir. Ferguson hafði verið meðferðin sem hélt krabbameini Glazer-fjölskyldunnar frá því að dreifa sér. Hann stýrði öllu, réði kúltúrnum og hafði lokaákvörðunarvald í hvað flestum málum. Ratcliffe hafði háleitar hugmyndir og það átti sannarlega að breyta stefnu félagsins. Stórar ákvarðanir á hans vakt hafa hins vegar litlu breytt og má færa rök fyrir því að staðan sé verri en þegar Austfirðingurinn breski kom að borðinu. Óvinsælar rekstrarákvarðanir sem hafa hvað helst bitnað á launalægsta og ábyrgðarminnsta starfsfólki félagsins skilja eftir óbragð í munni á meðan himinháum fjárhæðum er áfram eytt í vonlausa fótboltamenn sem virðast engan áhuga hafa á því að axla ábyrgð frekar en þeir sem eru efst í pýramídanum. Fleiri miðjumenn Leikmannahópur Manchester United í sumar öskraði á breytingar baka til og auka mann í fremstu línu. Himinháum fjárhæðum var varið í miðjumenn, þar á meðal nánast hreyfingarlausan Youri Tielemans og leikmann frá Chelsea sem þurfti að hafa fyrir því að komast á bekkinn í Lundúnum. Michael Carrick gekk vel þegar hann tók við, pressulaus, af Rúben Amorim sem hafði þó reynt að gera stórvægari breytingar á félaginu en hann fékk í gegn. Nú virðist hins vegar koma í ljós að stjóri sem var rekinn frá Middlesbrough í ensku B-deildinni fyrir ekki svo löngu valdi ekki einu stærsta stjórastarfi heims. Gagnrýna má taktískt upplegg hans og hversu lítið hann virðist ná til leikmannahóps sem leiddur er af fyrirliðanum Bruno Fernandes. Sá portúgalski var álíka hauslaus og restin af hauslausa hernum sem hann leiddi í gær og tók upp á því að kenna þjálfaranum og nálgun hans um niðurstöðuna eftir leik. Það kemur viku eftir að Lisandro Martínez kenndi forystu félagsins um stöðuna sem er upp er komin. Það þurfi að kaupa fleiri og betri leikmenn til að félagið nái árangri. Sagan hefur hins vegar sýnt að sama hver sé fenginn inn hefur viðkomandi ekki styrk til að valda þungri treyju sigursælasta liðs síðustu 30 ára, burtséð frá aldri og fyrri störfum. Allir virðast þeir smitast af veikinni sem umlykur félagið. Hver er lausnin? Allir benda hver á annan en líklega mun það vera Carrick sem endanlega axlar ábyrgðina og verði rekinn innan skamms. Carrick er þó sá aðili hjá félaginu sem líklega þykir hvað vænst um það. Vænna en Ratcliffe, Wilcox, Berrada og hinum stjórnarmönnunum sem brugðust Carrick í sumar og vænna en leikmönnum sem hirða himinháan launatjékka en virðist skorta alla ástríðu fyrir félaginu. Knattspyrnustjórar Manchester United frá 2013 David Moyes, júlí 2013 til apríl 2014 (9 mánuðir) Ryan Giggs, apríl til maí 2014 (til bráðabirgða) Louis van Gaal, júlí 2014 til maí 2016 (2 ár) José Mourinho, maí 2016 til desember 2018 (2 ár) Ole Gunnar Solskjær, desember 2018 til nóvember 2021 (3 ár) Michael Carrick, nóvember til desember 2021 (til bráðabirgða) Ralf Rangnick, desember 2021 til maí 2022 (til bráðabirgða) Erik ten Hag, maí 2022 til október 2024 (2 ár) Ruud van Nistelrooy, október 2024 til nóvember 2024 (til bráðabirgða) Ruben Amorim, nóvember 2024 til janúar 2026 (1 ár) Darren Fletcher, janúar 2026 (til bráðabirgða) Michael Carrick, janúar 2026 til ? (9 mánuðir) United hefur reynt mismunandi leiðir – ráðið reynslubolta með sigurhefð í Van Gaal og Mourinho, heimamenn í Solskjær og Carrick, frábæran þjálfara en ömurlegan stjórnanda í Ten Hag og ungan og upprennandi stjóra í Amorim. Í fæstum tilfellum virðist stjórinn hins vegar hafa verið vandamálið enda hefur engum tekist að viðhalda árangri til lengri tíma og allir lenda í kreppu sökum ömurlegs andrúmslofts og kúltúrs sem enn og aftur er til sýnis í leikhúsi draumanna. Staðan er orðin svo slæm að þjálfarar andstæðinganna eru farnir að finna svo til með United-mönnum að þeir segja leikmönnum sínum að lágmarka niðurlægingu þeirra. Eftir höfðinu dansa limirnir og hæstráðendur skapa kúltúr vinnustaðarins. Þeir hafa reynt allskyns lyfjameðferð og aðgerðir en ekkert hefur ráðist á rót vandans. Á meðan hefur krabbameinið dreift sér víðar en nokkurn tímann fyrr og það er hreinlega spurning hvenær sjúklingurinn deyr. Manchester United Enski boltinn Utan vallar Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Sjá meira
Dýrustu leikmenn Manchester United frá 2013 Paul Pogba, 90 milljónir punda frá Juventus, 2016. Antony, 81 milljón punda frá Ajax, 2022. Harry Maguire, 80 milljónir punda frá Leicester, 2019. Romelu Lukaku, 75 milljónir punda frá Everton, 2017. Jadon Sancho, 73 milljónir punda frá Dortmund, 2021. Rasmus Höjlund, 72 milljónir punda frá Atalanta, 2023. Benjamin Sesko, 71 milljón punda frá RB Leipzig, 2025. Carlos Baleba, 70 milljónir punda frá Brighton, 2026. Bryan Mbeumo, 68 milljónir punda frá Brentford, 2025. Ángel Di María, 60 milljónir punda frá Real Madrid, 2014.
Knattspyrnustjórar Manchester United frá 2013 David Moyes, júlí 2013 til apríl 2014 (9 mánuðir) Ryan Giggs, apríl til maí 2014 (til bráðabirgða) Louis van Gaal, júlí 2014 til maí 2016 (2 ár) José Mourinho, maí 2016 til desember 2018 (2 ár) Ole Gunnar Solskjær, desember 2018 til nóvember 2021 (3 ár) Michael Carrick, nóvember til desember 2021 (til bráðabirgða) Ralf Rangnick, desember 2021 til maí 2022 (til bráðabirgða) Erik ten Hag, maí 2022 til október 2024 (2 ár) Ruud van Nistelrooy, október 2024 til nóvember 2024 (til bráðabirgða) Ruben Amorim, nóvember 2024 til janúar 2026 (1 ár) Darren Fletcher, janúar 2026 (til bráðabirgða) Michael Carrick, janúar 2026 til ? (9 mánuðir)
Manchester United Enski boltinn Utan vallar Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Sjá meira