Körfubolti

Kane brást illa við gríni Val­sarans

Aron Guðmundsson skrifar
DeAndre Kane í leik með Grindavík
DeAndre Kane í leik með Grindavík vísir

Cedrick Bowen, leikmaður Vals í Bónus deild karla í körfubolta, gerir stólpagrín að leit Grindvíkinga að DeAndre Kane í myndbandi sem hann birti á Instagram. Kane virðist ekki hafa tekið vel í myndbandið miðað við ummæli sem hann skrifaði við það.

Líkt og mikið hefur verið fjallað um í upphafi tímabils í Bónus-deildinni hefur Grindvíkingum tekist illa í fyrstu að ná sambandi við Kane en svo að fá hann hingað til lands.

Tvær umferðir eru búnar af Bónus deildinni og hafa Grindvíkingar tapað báðum leikjum sínum til þessa, en vonir standa til að Kane komi loks hingað til lands um helgina.

Valsmenn unnu sigur gegn Grindvíkingum í gær og í dag birti einn af leikmönnum Vals, Cedrick Bowen, myndband á Instagram-reikningi sínum þar sem hann gerir grín að stöðunni hjá Grindavík og Kane.

Bregður Bowen sér þar í hlutverk Grindvíkings sem leitar að Kane en af ummælum sem Kane sjálfur skrifaði við myndbandið má ráða að honum hafi ekki fundist það fyndið.

„Lítur út fyrir að þú sért að leita þér að nýju liði og samningi. Leiktu þér með eitthvað öruggt, þegar ég sný aftur mun ég leita svona að þér til þess að slá þig,“ skrifar Kane við myndband Bowen.

Bowen endurbirti ummæli sem Kane skrifaði við umrætt myndband en eyddi síðan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×