Golf

Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hér er væntanlega um meðfædda hæfileika að ræða.
Hér er væntanlega um meðfædda hæfileika að ræða. Vísir/Samsett

Elín Eir Andersen gerði sér lítið fyrir og hitti holu í höggi í fyrsta hring sínum um ævina. Hún fékk útprentað vottorð um afrekið.

Elín Eir er með fjölskyldu sinni og kærasta í golffríi á sunnanverðum Spáni og komst þar að því að þetta golfdót er víst ekkert svo erfitt.

Hún fór fyrsta hring ævinnar í dag á La Cala-golfvellinum.

„Ég var búin að slá ágætlega miðað við byrjanda allan hringinn, þar til ég kom að áttundu holunni og tók upp sjöjárnið. Ég hafði litla trú á högginu þar sem boltinn stefndi beint í einhverja steinahrúgu. Ég leit því undan til að ganga frá kylfunni, en þá byrjaði kærastinn minn að kalla að boltinn væri á leiðinni ofan í holuna. Þegar ég sneri mér við var boltinn þegar kominn ofan í,“ segir Elín.

Hótelstarfsfólk vottaði fyrir afrekið með þessu fína skírteini.Aðsend

Hún hitti því holu í höggi án þess að sjá það gerast. Það fer þó ekkert á milli mála enda er hún stoltur handhafi vottorðs um afrekið.

Hún vill eigna litla bróður sínum heiðurinn sem hún segist hafa kennt sér tæknina.

„Litli bróðir minn, sem er 12 ára og mjög góður í golfi, með 10 í forgjöf, hafði einmitt fyrr um daginn kennt mér tæknina við að tsjippa og pútta. Ég ætla að leyfa honum að eiga heiðurinn af þessu,“ segir Elín Eir Andersen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×