Körfubolti

Hefur sitt 40. tíma­bil: „Eins og að bera saman epli og appel­sínur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristinn er einn af okkar bestu dómurum.
Kristinn er einn af okkar bestu dómurum. vísir/sigurjón

Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson er byrjaður að dæma sitt fertugasta tímabil í efstu deild. Hann hóf störf í efstu deild kvenna árið 1987 og þetta tímabil leggst vel í einn af okkar bestu dómurum.

„Auðvitað hefur leikurinn bara þróast og reglurnar eru mikið breyttar og líka hvernig leikurinn er leikinn,“ segir Kristinn sem fer ítarlega yfir áherslubreytingar og reglubreytingar komandi tímabils í upphitunarþætti Körfuboltakvölds á Sýn Sport Ísland klukkan átta í kvöld.

Klippa: Tíu árum seinna fær maður faðmlag

„Það eru miklu meiri snertingar í boltanum í dag og miklu meiri íþróttamennska. Liðin eru orðin mun taktískari og alvarleikinn í dag er á efsta stigi. Það eru fleiri útlendingar og mikil atvinnumennska í gangi þannig að þetta er bara eins og að bera saman epli og appelsínur.“

Það er hans tilfinning að núna sé meira undir í hverjum leik.

Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson og Dominik Zielinski í leik fyrir nokkrum árum. 

„Tilfinningar hafa alltaf verið í spilinu og í gamla daga þegar bara Keflavík og Njarðvík spiluðu þá var kjaftfullt á Sunnubrautinni þannig að það hefur alveg áður verið. En gæði leiksins eru bara miklu meiri og það er einhvern veginn meiri alvarleiki og kannski bara meiri hagsmunir.“

Stórkostlegir leikmenn

En hvernig hefur Kristinn náð að halda sér svona lengi í faginu?

„Það eru nokkrir þættir. Í fyrsta lagi er nú bara gott að finna sér starf eða áhugamál þar sem maður finnur að maður hefur eitthvað fram til málanna að leggja og mér finnst ég hafa náð ágætistökum á þessu starfi. Svo er það að fá að vera hluti af þessum dýnamíska leik og vera bara að fá að vera inni á vellinum með þessum stórkostlegu leikmönnum bæði kvennamegin og karlamegin,“ segir Kristinn og heldur áfram.

„Svo kannski það sem skiptir mestu máli er hvað maður fær að tengjast mikið af fólki og kynnast mikið af fólki, bæði dómurunum og svo auðvitað líka leikmönnum, þjálfurum, stuðningsmönnum og stjórnarmönnum sem verða vinir manns. Þó að einhverjir upplifi að þetta sé kannski erfitt og kannski einhverjir hagsmunaárekstrar að einhverju leyti, en bara tíu árum seinna þegar maður hittir þetta fólk á bensínstöð á Blönduósi þá fær maður faðmlag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×