Körfubolti

Sóttu fyrsta sigur tíma­bilsins á heima­velli

Andri Broddason skrifar
Stjarnan náði að vinna öruggan sigur á Ármanni í Bónus-deild kvenna.
Stjarnan náði að vinna öruggan sigur á Ármanni í Bónus-deild kvenna. Hulda/Vísir

Stjarnan tók á móti Ármanni í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Stjarnan byrjaði vel og náði að viðhalda forskotinu og sigldi heim sigri þar sem leikurinn endaði 80-62.

Stjarnan mætti sterk til leiks og eftir fyrsta leikhluta var liðið með þrettán stiga forskot. Leikmenn Ármanns komu þó sterkari til baka í næstu tveim leikhlutum og þegar komið var á síðasta leikhluta var Stjarnan aðeins með sex stiga forystu, 57-51.

Ármann náði þó ekki að vinna upp forystuna sem Stjarnan var búin að vinna sér inn og endaði leikurinn með 80-62 sigri heimakvennanna. Stjarnan vann þá sinn fyrsta sigur á tímabilinu en liðið tapaði fyrir Stjörnunni í fyrstu umferðinni. Ármann þarf að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum þar sem liðið tapaði fyrir Grindavík í fyrstu umferðinni.

Diamond Battles, leikmaður Ármanns, var stigahæsti leikmaður leiksins með 21 stig en Eva Wium Elíasdóttir átti stórleik í liði Stjörnunnar. Hún skoraði 19 stig, gaf sjö stoðsendingar og tók fimmfráköst. Sömuleiðis átti Stine Josefine Almqvist flottan leik hjá Stjörnunni en hún skoraði 13 stig, gaf sex stoðsendingar og tók ellefu fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×