Körfubolti

16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Atli Freyr átti ótrúlega frumraun í efstu deild.
Atli Freyr átti ótrúlega frumraun í efstu deild. KKÍ

Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sögulega frumraun fyrir Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Hann var bestur á vellinum í öruggum sigri á Stjörnunni.

Atli Freyr var fyrstur á vellinum til að ná tvöfaldri tvennu í kvöld en Dwayne Lautier, stjörnuleikmaður Vals, rétt náði því sama með tíunda frákasti sínu í fjórða leikhluta.

Atli var þá með 100 prósent skotnýtingu langt framan af leik en endaði stigahæstur Valsmanna með 18 stig, frákastahæstur á vellinum með 12 fráköst og með skotnýtingu upp á heil 77 prósent.

Óhætt er að segja að hann hafi ekki búist við þessu þegar hann mætti á Hlíðarenda fyrr í dag.

„Nei, ég var bara að búast við að ég myndi eiga mjög venjulegan leik, verandi í meistaraflokki sem 16 ára drengur. Ég var ekki að búast við þessu, svo hélt leikurinn áfram og ég nýtti skotin og við unnum,“ segir Atli Freyr við Sýn Sport eftir leik.

„Ég elska þetta. Ég elska að spila í þessu umhverfi, ég elska allt við Bónus-deildina og að vera í meistaraflokknum,“ segir kampakátur Atli Freyr.

Valsmenn mættu nokkuð vel í stúkuna í kvöld en stuðningsmenn þeirra eru ekki þekktir fyrir að láta mikið í sér heyra í deildarkeppninni. Nánast hver einasti maður var hins vegar farinn að standa upp og fagna Atla eftir því sem körfum þessa uppalda leikmanns rigndi niður.

„Hún er bara ein besta tilfinning sem ég hef upplifað á ferlinum hingað til,“ segir Atli.

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali eftir leik að Valsmenn hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að spila Atla ekki í fyrra og láta hann taka eitt ár enn í yngri flokkum. Atli Freyr kom svo á fullt inn á æfingar aðalliðsins í sumar.

„Mér fannst þetta rétti tíminn. Ég var ekki nægilega tilbúinn fyrir ári. Núna er ég bara all in með meistaraflokknum og það er besta ákvörðun sem ég gat tekið,“ segir Atli og óhætt er að segja að honum leiðist ekki að æfa með frábæru Valsliði.

„Þetta er geggjað umhverfi, ég elska alla sem ég er að æfa með. Frábær andi og þetta er bara geðveikt,“ segir Atli sem er á fyrsta ári í menntaskóla og var á leið heim á koddann.

„Núna er bara endurhæfing. Svo bara að sofa vel og fara í skólann á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×