Sport

Hljóp lengra en nokkur annar ís­lenskur karl­maður hefur gert

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Tómas Þórisson er nú sá Íslendingur sem hefur hlaupið lengst á einum sólarhring.
Sigurður Tómas Þórisson er nú sá Íslendingur sem hefur hlaupið lengst á einum sólarhring. @hraundrangi

Sigurður Tómas Þórisson setti nýtt Íslandsmet í 24 klukkutíma hlaupi en afrekið vann hann á móti í Albi í Suður-Frakklandi.

Sigurði Tómasi, sem keppir undir merkjum Ægis3, Þríþrautarfélags Reykjavíkur, tókst að hlaupa 240,125 kílómetra á þessum eina sólarhring. Gamla metið var í eigu Gunnlaugs Júlíussonar sem hljóp 217,745 kílómetra í maí 2008.

Fyrirkomulag í svona hlaupi er að þú hleypur eins langt og þú getur á 24 klukkutímum. Þú mátt hvíla eins og þú vilt á milli hringja. Á Íslandi hafa verið haldin tvö svo hlaup í Rauðavatni Ultra, eða árin 2025 og 2026.

Sigurður Tómas sló ekki aðeins Íslandsmetið heldur fagnaði hann einnig sigri á mótinu. Ekki aðeins í sínum flokki, sem var 35 til 39 ára, heldur einnig í opnum flokki.

Hann var efstur af 81 í allri keppninni, efstur af sjö í sínum flokki og efstur af 57 karlmönnum sem tóku þátt.

Næstir á eftir Sigurði í opnum flokki voru Muceniece Gita sem hljóp 231,181 kílómetra og Benoit Gourves sem hljóp 207,33 kílómetra. Gita var efst kvenna.

Yfirburðir Sigurðar í hans flokki sjást vel á því að næstur í hans flokki var Benoit Bouvet sem hljóp 170,062 kílómetra eða meira en sjötíu kílómetrum skemur en okkar maður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×