Sport

„Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Dagur Gautason í háloftunum.
Dagur Gautason í háloftunum. Vísir/Hulda Margrét

„Ég er ótrúlega glaður, ég er svo þreyttur að ég veit ekki alveg hvað ég á að segja,“ sagði Dagur Gautason eftir 32-28 sigur KA á Aftureldingu. Dagur gerði sér lítið fyrir og skoraði 9 mörk úr 9 skotum. 

„Ótrúlega góð tilfinning að vinna Aftureldingu sem hafa verið sjóðheitir, gott lið. Sérstaklega þar sem við höfum verið lélegir í síðustu tveimur leikjum. Við höfum verið að mæta inn í klefa eftir leik og verið ósáttir við sjálfa okkur. Það er ótrúlega sætt að koma á heimavöll og þrátt fyrir síðustu tvo leiki er samt stappað í húsinu af fólki sem er að styðja okkur, þó við séum búnir að vera lélegir og vinna ofan á það er bara geðveikt.“

KA var aðeins einu sinni undir í leiknum og var það í stöðunni 1-2. 

„Mér fannst við bara loksins ná því fram sem við viljum standa fyrir, alveg sama við hverja við erum að spila að þá viljum við að það sé erfitt að mæta okkur. Sama hvernig leikurinn fer þá eiga liðin að hafa fyrir því og það er ekki búið að vera þannig í síðustu tveimur leikjum. Loksins mætum við með alvöru baráttu og hjarta í leikinn. Þannig að burtséð frá allri taktík þá held ég að það sé grunnurinn að þessum sigri.“

Dagur var í miklum gír í kvöld og eins og áður sagði skoraði 9 mörk úr 9 skotum. 

„Ég var ekkert spes í síðasta leik en ég undirbjó mig vel fyrir þennan leik. Ég horfði á videó af Einar Baldvin í markinu hjá Aftureldingu fyrir leik og hann er ótrúlegur. Þannig ég lagði exta mikla vinnu í það. Já eins og ég sagði þá undirbjó ég mig bara vel og ætlaði að njóta þess að spila.“

Dagur var með blóðuga og bólgna vör eftir leikinn. 

„Ég reyndi að fiska ruðning í fyrri hálfleik og fékk fótinn á frænda mínum Árna í andlitið og víti dæmt á mig. Þannig þetta var þvílíkt klúður hjá mér en ég held það hafi hjálpað mér á endanum að fá smá blóð á tennurnar. Þetta verður örugglega vont í kvöld en held að þetta hafi hjálpað mér í leiknum.“

Það var fullt í KA-heimilinu í kvöld og mikil stemmning. Spurður út í það hversu miklu máli það skipti að sjá húsið í þessum gír.  

„Það skiptir okkur öllu máli, eins og ég sagði áðan þá erum við búnir að vera ótrúlega daprir í síðustu tveimur leikjum. Samt einhvern veginn kemur fólk að horfa á okkur og það er stappað í húsinu og geggjuð stemmning. Þetta er í rauninni bara einstakt finnst mér í KA-heimilinu, ég hef spilað með nokkrum liðum en ég elska að spila hér. Það er alveg sama hvert ég horfi í stúkunni, ég veit hver er hvar. Þegar ég sé pabba minn standa upp og öskra að þá er hann ósáttur, sé vini mína brjálaða og fagna þegar ég skora og bara lætin frá fólkinu í húsinu. Mér finnst bara af öllum stöðum sem ég hef spilað í heiminum þá er KA-heimilið alltaf best.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×