Sport

Stólpa­grín gert að „nasistamerki“ Fálkanna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þýskalands nasismans kemur við sögu í gríni netverja að nýju merki Atlanta Falcons.
Þýskalands nasismans kemur við sögu í gríni netverja að nýju merki Atlanta Falcons. Skjáskot

Atlanta Falcons opinberaði nýtt merki á dögunum sem átti að vera kall til fortíðar (e. throwback) sem hefur hlotið gagnrýni, en aðallega grín. Merkið þykir minna á SS-sveitir nasista.

Falcons opinberaði merkið í vikunni sem er í retro stíl. Það inniheldur rauðar, hvítar og svartar línur, líkt og merki og fánar SS-sveitanna í valdatíð Adolfs Hitler í Þýskalandi.

Nýtt retro merki Atlanta Falcons.Atlanta Falcons

Stólpagrín hefur verið gert að Falcons vegna málsins og fjölmörg myndskeið unnin með hjálp gervigreindar þar sem fjölmörg þýsk minni koma við sögu. Nokkur dæmi um slíkt má sjá að neðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×