Formúla 1

„Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýr­land og frelsa Palestínu“

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton hefur loksins fengið það í gegn að fá Formúlu 1 kappakstur í Afríku.
Lewis Hamilton hefur loksins fengið það í gegn að fá Formúlu 1 kappakstur í Afríku. Clive Mason/Getty Images

Lewis Hamilton hefur lengi barist fyrir því að fá Formúlu 1-kappakstur í Afríku. Í síðustu viku var staðfest að snemma á næsta áratug verði kappakstur í Rúanda í Afríku. Þó að Hamilton sé ánægður með að Formúla 1 snúi aftur til Afríku þá er hann ekki jafn sannfærður um landið.

Rúanda er staðsett í miðri Afríku en landið hefur verið gagnrýnt af nágrönnum sínum í vestri, Lýðstjórnarveldnu Kongó. Þar hefur utanríkisráðherra landsins gagnrýnt Rúanda fyrir að nota kappaksturinn til þess að líta betur út á heimsvísu og að verið sé að fela þjóðarmorð, pyntingar og stöðu kvenna með kappakstrinum.

Lewis Hamilton ólst upp á Englandi og vildi óska þess að meira væri lært um heimsálfuna í skólum þar í landi.

„Það eru vandamál út um allan heim núna en ég held við þurfum að mæta þessu með hógværð. Það er mikið sem við vitum ekki. Okkur var aldrei kennt um Afríku og það þarf að vera á námskránni. Mikið af vandamálum sem [Rúanda] er með er vegna nýlenduherra og inngrips vestræna heimsins,“ sagði Lewis Hamilton á blaðamannafundi fyrir bandaríska kappaksturinn um helgina.

Hamilton hefur ferðast nokkrum sinnum til Afríku og segir hana vera gullfallega heimsálfu. Þrátt fyrir það er mikið af slæmum hlutum þar og vonar hann að kappaksturinn geti vakið athygli á því.

„Vonandi byrjar fólk að fræða sig um hvað er að gerast þarna og hvað hefur gerst síðustu 100 ár. Að lokum þurfum við að reyna að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu. Ég vona að við náum miklum friði á einhverjum tímapunkti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×