Besta deild karla

Fréttamynd

Aron pirraður: „Al­gjör ó­þarfi“

Aron Sigurðarson var besti maður vallarins í frábærri frammistöðu KR sem vann 6-2 stórsigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Þrátt fyrir það var pirringur ofar gleði eftir leik.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Tölum saman eftir sex mánuði“

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með sína menn eftir yfirgnæfandi 6-2 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta í Vestamannaeyjum í dag. KR-liðið sýni þroskamerki eftir erfitt síðasta ár.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga

KR heldur toppsæti Bestu deildar karla eftir afgerandi 6-2 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í þriðju umferð deildarinnar í dag. KR lék sér að heimamönnum og hefði hæglega getað unnið stærra.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans

Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hreint agalega og var refsað fyrir það.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég er ekkert ó­ró­legur“

Hallgrímur Jónasson prísar sig sælan að komast með stig frá Akranesi eftir 1-1 jafntefli hans manna í KA við ÍA í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í kvöld. Hann er ánægður með sína menn og segir þetta sterkt stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var að mörgu leyti sáttur við spilamennsku sinna manna þrátt fyrir svekkjandi tap liðsins á móti Stjörnunni í annarri umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“

Jökull I. Elísabetarson og lærisveinar hans hjá Stjörnunni eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í Bestu-deild karla í fótbolta en liðið lagði FH að velli í annarri umferð deildarinnar í Garðabænum í kvöld. 

Fótbolti