Upp­gjörið: Serbía - Ís­land 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sveindís Jane skoraði þriðja mark Íslands eftir stórkostlegan sprett upp allan völlinn.
Sveindís Jane skoraði þriðja mark Íslands eftir stórkostlegan sprett upp allan völlinn. vísir

Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu fara á góðum nótum upp í flugvélina til Sviss, með 3-1 sigur í æfingaleik gegn Serbíu að baki. Þær bundu þar með enda á langa sigurlausa hrinu og mæta Finnum fullar sjálfstrausts í fyrsta leik á EM. Tveggja marka forysta var tekin á innan við fimm mínútum ogSveindís Jane skoraði svo stórbrotið mark í seinni hálfleik eftir sprett upp allan völlinn.

Tveggja marka forysta á innan við fimm mínútum

Ísland beið þolinmótt í tæplega þrjár mínútur, steig svo upp á hárréttum tímapunkti og vann boltann á vallarhelmingi Serbíu. Alexandra Jóhannsdóttir var snögg að hugsa og stinga inn á Söndru Maríu sem kláraði færið vel með hægri fæti, renndi boltanum í fjærhornið.

Aðeins tveimur mínútum síðar vann Ísland boltann aftur og forystan var tvöfölduð jafnfljótt og hún var tekin. Sveindís Jane var snögg að snúa vörn í sókn og koma boltanum á Karólínu Leu. Hún tók frábært skot, eiginlega utanfótar, alveg út við stöng og óverjandi fyrir markmanninn.

Bjargað á línu skömmu síðar

Íslenska liðið sat svo þolinmótt næstu mínútur og beið eftir næsta tækifæri, sem var ekki langt undan. Sveindís Jane skaut rétt framhjá úr frábæru færi og gaf síðan mínútu síðar á Söndru Maríu, sem skaut í varnarmann og boltinn virtist ætla að leka yfir línuna en markmaðurinn náði að leggja hönd á hann.

Rólegt eftir vatnspásuna

Ísland fékk síðan nokkur hálffæri fram að vatnspásunni sem var tekin eftir tæplega hálftíma vegna hitans. Eftir það róaðist leikurinn til muna og fátt markvert gerðist fram að hálfleik.

Skyndilegt mark Sveindísar

Í seinni hálfleik stigu Serbarnir aðeins upp og voru farnir að ógna þegar Sveindís Jane skoraði, mjög skyndilega, þriðja mark Íslands.

Sveindís fékk boltann á eigin vallarhelmingi, sneri snöggt á varnarmann og spretti upp allan vinstri vænginn, skaut fyrir utan vítateig og boltinn söng í netinu.

Buðu Serbum að minnka muninn

Stórbrotið einstaklingsframtak Sveindísar var samt svona um það bil eina færið sem Ísland hafði skapað sér í seinni hálfleik og Serbarnir voru á móti búnir að taka við völdum á vellinum.

Ísland hélt áfram að lenda í vandræðum þrátt fyrir að komast þremur mörkum yfir og bauð Serbum að minnka muninn með slöku uppspili og vondum varnarleik.

Miljana Ivanovic var sú sem nýtti tækifærið eftir að nokkrar aðrar höfðu skotið laust á markið, renndi boltanum í nærhornið og Cecilia náði ekki til hans.

Vöknuðu aftur eftir vatnspásu og markið

Rétt eftir að Serbar minnkuðu muninn var tekin vatnspása og við það virtist íslenska liðið vakna á ný.

Fram að leikslokum var Ísland hættulegri aðilinn. Ekki með sömu yfirburðum og í fyrri hálfleik, Serbarnir stigu stundum upp í skyndisóknum, en heilt yfir með fína stjórn á leiknum og margar ágætis sóknir.

Fleiri mörk voru hins vegar ekki skoruð, Diljá Ýr komst næst því með stórskemmtilegu skoti fyrir utan vítateig sem small í samskeytunum. Ísland fór með öruggan 1-3 sigur úr síðasta leiknum fyrir EM.

Sex skiptingar

Þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson gerði alls sex skiptingar í þessum æfingaleik, teknar í tveggja leikmanna skömmtum með reglulegu millibili.

Tvöföld breyting í hálfleik þegar Agla María og Sædís Rún komu inn. Tvöföld breyting á sextugustu þegar Dagný og Diljá komu inn. Og tvöföld breyting þegar korter var eftir, þegar Amanda og Berglind voru settar inn. 

Guðný og Diljá fyrst teknar út, svo Hlín og Hildur áður en Karólína og Alexandra voru hvíldar. 

Mikið hróflað við liðinu og ýmsum aðferðum beitt. Sveindís Jane sett upp á topp rétt eftir að hafa sprengt upp vinstri vænginn í þriðja markinu, það var sérstakt. Fínt annars að geta gefið leikmönnum hvíld og, á hinn bóginn, mínútur.  

Stjörnur og skúrkar

Sveindís Jane skein eins og svo oft áður skærast af öllum leikmönnum íslenska liðsins með stórkostlegu einstaklingsmarki. Fínn leikur hjá henni að flestöllu öðru leiti, algjörlega frábært mark en líka slatti af færum sem hefði verið hægt að nýta betur.

Fyrirliðinn Glódís Perla á þrítugsafmæli í dag og því afsökuð, en virkaði hálf ringluð og auðveldlega sóluð í markinu sem Serbía skoraði.

Ferðaplanið - Sviss á morgun

Stelpurnar okkar fljúga til Sviss á morgun þar sem tekur við lokaundirbúningur fyrir EM. Fyrsti leikurinn fer fram í Thun næsta miðvikudag gegn Finnlandi. Þaðan liggur leiðin til Bern í leik gegn heimakonum Sviss 6. júlí og svo aftur til Thun í lokaleik riðlakeppninnar gegn Noregi 10. júlí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira