Fótbolti

Diomande með frá­bært mark í sigri Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe fagnar hér markaskoraranum Yan Diomande eftir hið frábæra fjórða mark Real Madrid í kvöld.
Kylian Mbappe fagnar hér markaskoraranum Yan Diomande eftir hið frábæra fjórða mark Real Madrid í kvöld. AP/Manu Fernandez

Yan Diomande minnti á sig með flottri frammistöðu með Real Madrid í Meistaradeildinni. Real Madrid er í hópi fimm félaga með fullt hús og eitt af þeim er Aston Villa sem vann Íslendingalið í kvöld.

Diomande var með mark og stoðsendingu í 4-1 sigri á RB Leipzig á Bernabéu-leikvanginum.

Bernardo Silva skoraði eina mark fyrri hálfleiks og Arda Güler skoraði annað markið eftir stoðsendingu frá Kylian Mbappé.

Mbappé skoraði þriðja markið eftir stoðsendingu frá Diomande en Þjóðverjarnir minnkuðu muninn með marki Tidiam Gomis.

Lokamarkið var fallegasta markið þegar Diomande skoraði með frábæru viðstöðulausu skoti eftir sendingu frá Brahim Díaz en báðir komu þeir inn á völlinn sem varamenn.

Aston Villa er áfram með fullt hús eftir 3-1 sigur á norska félaginu Viking á Villa Park.

Ross Barkley og Emiliano Buendía komu Villa í 2-0 í fyrri hálfleik og sjálfsmark Henrik Heggheim kom enska liðinu síðan í 3-0 á 62. mínútu.

Peter Christiansen minnkaði muninn í 3-1 á 84. mínútu en þá var íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Amin Cosic kominn inn á völlinn sem varamaður.

Carlos Augusto tryggði Internazionale 1-0 sigur á Shakhtar Donetsk á 77. mínútu en ítalska liðið var manni færri frá 68. mínútu.

Hans Vanaken, Joaquin Seys og Carlos Forbs skoruðu mörkin í 3-0 sigri Club Brugge á Lens.

Krystof Danek, Christoph Lang og Sasa Kalajdzic skoruðu fyrir LASK í 3-2 útisigri á Sporting en Luis Suárez kom portúgalska liðinu í 1-0 og minnkaði líka muninn í 3-2 undir lokin.

Isco skoraði eina markið úr vítaspyrnu á 59. mínútu þegar Real Betis vann 1-0 sigur á Feyenoord.

Aston Villa (2. sæti), Real Madrid (4. sæti) og Real Betis (5. sæti) hafa öll unnið alla þrjá leiki sína og eru með fullt hús eins og Paris Saint-Germain (1. sæti) og Liverpool (3. sæti).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×