Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Haraldur Örn Haraldsson skrifar 23. júní 2025 21:07 Valsmenn fagna einu marka sinna í kvöld. Hér hefur Orri Sigurður Ómarsson skorað. Vísir/Diego Valur vann í kvöld stórsigur gegn KR 6-1. Valur byrjaði leikinn af krafti og það var í raun aldrei spurning hver myndi vinna þennan leik, heldur bara hversu stórt. Leikurinn byrjaði svo sannarlega með krafti þar sem það voru bara liðnar einhverjar sekúndur af leiknum þegar Patrick Pedersen var kominn með boltann fyrir utan teiginn. Hann tók skotið, Halldór Snær í marki KR var kominn aðeins af línunni sinni og þurfti að hoppa bak við sig til þess að ýta boltanum yfir markið. Örfáum mínútum síðar komst Valur í góða sókn þar sem Finnur Tómas ætlar að hreinsa boltann en skorar næstum sjálfsmark. Valur fékk horn úr því, þeir koma boltanum inn í teiginn þar sem Pedersen fær hann á fjær. Hann nær að koma boltanum aftur fyrir markið á Kristinn Frey sem hafði opið mark fyrir framan sig og hann skoraði í það. KR fékk þá smá tíma þar sem þeir héldu í boltann en sköpuðu sér lítið, fram að 26. Mínútu. Þá er Jóhannes Kristinn með boltann inn í teig og sendir boltann frá sér, hann hleypur svo bara á Sigurð Egil og dettur við það. Sigurður Hjörtur dómari leiksins dæmir þá víti og Sigurður skildi ekkert í honum. Jóhannes fer sjálfur á punktinn og renndi boltanum snyrtilega fram hjá Schram í markinu. Það tók Val aðeins tvær mínútur að svara þessu. Þeir spiluðu vel saman á hægri kantinum og komu boltanum á Kristinn Frey inn í teig. Hann var kominn alveg upp að endalínu og lagði þá boltann til baka inn í teig. Þar kom Tómas Bent í hlaupið og setti boltann þéttingsfast í nærhornið, vel klárað hjá honum og Valur aftur komið í forystuna. Það var svo á 43. Mínútu leiksins sem Valur fékk hornspyrnu, Tryggvi Hrafn tók spyrnuna og lyfti boltanum inn í teiginn. Boltinn fer þar af Tómasi Bent og ratar á fjærsvæðið þar sem Orri Sigurður var mættur. Hann var bara örfáum metrum frá markinu og átti ekki erfitt með að klára það færið. Eintóm gleði þegar Valur skorar þriðja mark sittPawel Cieslikiwicz/Vísir Staðan 3-1 í hálfleik, Valur töluvert betri aðilinn og ætti ekki að vera búið að fá mark á sig. KR-ingar verið lélegir varnarlega og ekki skapað mikið sóknarlega. KR komst í nokkur fín færi í seinni hálfleik en náðu ekki að nýta þau, auk þess sem Frederik Schram átti góðan leik í markinu. Það var svo Valur sem bætti við á 70. Mínútu þegar þeir sentu boltann inn fyrir og Pedersen var sloppinn í gegn. Hann var alls ekki gráðugur því þegar hann var kominn inn á teig lagði hann boltann fyrir á Tryggva Hrafn sem kláraði í opið markið. Á 75. Mínútu sast Patrick Pedersen í grasið meiddur og kom sér svo af velli og Valur ætlaði að skipta honum af velli. Þeir fengu það ekki strax þannig Pedersen haltraði aftur inn á. Þá vinnur Valur boltann, geysist upp í skyndisókn og auðvitað endar Pedersen á því að skora úr því, fer svo bara beint út af. Valur náði í eitt annað mark rétt í lok uppbótatíma, KR-ingar bara gjörsamlega hættir. Þeir gáfu boltann bara á Lúkas Loga sem var í dauðafæri og kláraði vel fram hjá Halldóri. Frábær frammistaða hjá Val en KR-ingar hræðilegir. Atvik leiksins Vítadómurinn var alveg klárlega rangur en skemmtilegasta atvik leiksins er þegar Patrick Pedersen ætlar að fara af velli meiddur. Valur fékk ekki að gera skiptinguna strax þannig hann haltraði aftur inn á völl. Valur vann þá boltann og auðvitað skoraði hann strax eftir það. Stjörnur og skúrkar Vals liðið var frábært í dag. Besti maður vallarins af mínu mati var Kristinn Freyr Sigurðsson, en erfitt að velja á milli þeir voru bara allir mjög góðir. Skúrkurinn er aftur á móti allt KR liðið, en það fellst þá kannski bara á þjálfarann. Valur gekk frá KR í dag og þá verður að kenna Óskari um. Dómararnir Sigurður Hjörtur dæmdi víti, en hefði átt að sleppa því.Pawel Cieslikiwicz/Vísir Sigurður Hjörtur og teymi eiga góðan leik fyrir utan vítaspyrnudóminn. Hann var kolrangur. Stemning og umgjörð Mætingin var til fyrirmyndar á Hlíðarenda í kvöld, bæði hjá stuðningsmönnum Vals og KR. KR-ingar voru töluvert háværari og glaðari í söngnum, en þegar fór að líða á og Valur var að rústa þeim, snúðist þetta við. KR-ingar svo í lokin bandbrjálaðir og bauluðu á sína menn. Besta deild karla Valur KR Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Íslenski boltinn