Leik lokið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Árni Jóhannsson skrifar 23. júní 2025 18:30 Frá leik Breiðabliks fyrr á tímabilinu Vísir/Diego Breiðablik náði í jafntefli gegn Fram fyrr í kvöld. Fram var einu marki yfir þegar komið var í uppbótartíma þegar heimamenn fengu víti í uppbótartímar sem Haöskuldur Gunnlaugsson skoraði úr. Fram getur verið ósáttari aðilinn í lok leiks þar sem þeir gerðu virkilega vel úr sínum aðgerðum. Fram sýndi það strax í byrjun að þeir ætluðu að vera kraftmiklir fram á við þegar þeir myndu vinna boltann en eftir nokkrar mínútur náðu Breiðablik valdi á leiknum og voru meira með boltann en náðu ekki að skapa færi til að ná inn markinu sem þeir þráðu. Fram gat verið sáttari aðilinn eftir fyrri hálfleik þar sem þeir náðu að nýta sína krafta, það er að segja, liggja þétt til baka og sprengja upp völlinn þegar þeir unnu boltann og komu heimamönnum í meira vesen í varnarleik sínum. Staðan var 0-0 í hálfleik og mál manna í blaðamannstúkunni að fjör hefði vantað í fyrri hálfleikinn. Það átti heldur betur eftir að breytast í seinni hálfleik. Strax á fjórðu mínútu seinni hálfleik skoraði Vuk Oskar Dimitrijevic mark, en þetta er fimmti leikurinn í röð sem hann skorar, Fram gerði vel í að vinna boltann og þeysast upp völlinn. Þar komst Freyr Sigurðsson upp að teignum, sendi boltann á Kennie Chopart sem sneiddi boltann inn í teiginn þar sem Vuk var mættur til að spyrna boltanum í netið. Nánast óverjandi fyrir Anton. Eftir það þá voru Blikar meira og minna með boltann án þess, aftur, að ná að skapa sér færi. Fram gerði þó vel í að reyna að sprengja upp völlinn og skapa sér stöður en ekki mörg færi. Þeir áttu þó sláar skot strax eftir markið sitt og þar á eftir átti Róbert Haukson að gera betur í að fylgja á eftir því skoti en hann fékk boltann nánast í sig og þaðan fór boltinn yfir markið. Þegar klukkan small í 90 mínútur var dæmd vítaspyrna. Það er hægt að deila um það hvort dómurinn hafi verið réttur en hún stóð og Höskuldur Gunnlaugsson skoraði úr vítinu. Aðdragandi vítisins var þannig að Blikar náðu að skapa sér færi og Höskuldur hafði skallað í stöng af eins meters færi og þegar Ágúst Orri Þorsteinsson var að fara að taka frákastið og ná skoti þá virtist Israel Moreno sparka aftan í hann og vítið dæmt. Eftir að vítið var dæmt þá varð heldur betur hamagangur í öskjunni. Blikar reyndu að ná boltanum fljótt úr netinu en leikmenn Fram voru fyrri til og lágu menn eftir handalögmálin og Höskuldur og Kyle McLagan voru reknir af velli fyrir sína þætti í látunum. Hægt er sjá þetta atvik í fréttinni að neðan. Leikurinn fór sjö mínútur í uppbótartíma og Blikar reyndu eins og þeir gátu að stela sigrinum en náðu því ekki. Fram náði heldur ekki að gera sér mat úr sínum stöðum og 1-1 jafntefli niðurstaðan. Atvik leiksins Það er að sjálfsögðu atvikið sem hægt er að sjá í fréttinni hér að ofan. Víti sem er umdeilt og svo slagsmál og læti strax þar á eftir. Stjörnur og skúrkar Blaðamanni fannst vanta kraft á löngum köflum í leik Breiðabliks og sendingar á lokaþriðjungi vallarins oft misheppnaðar og ekki við neinn einn að sakast í þeim efnum. Hjá Fram er hægt að horfa til Vuk sem skoraði en varnarmenn Fram gerðu einnig vel í að t.d. halda Tobias Thomsen í skefjum en hann hefur verið einn af heitari framherjum í deildinni í sumar. Dómarinn Arnar Þór Stefánsson hefur líklega átt betri daga. Hann geymdi spjöldin í vasanum lengi vel í kvöld þó það hefði mátt finna atvik þar sem hefði mátt spjald láta fylgja með tiltalinu sem hann var að veita mönnum. Svo er vítadómurinn umdeildur svo ekki meira sé sagt. Umgjörð og stemmning Aðstæður frábærar í dag til að leika fótbolta og eftir lítið fjör í fyrri hálfleik fékk leikurinn það ris sem veðrið bauð upp á. Viðtöl: Besta deild karla Íslenski boltinn Breiðablik Fram
Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Íslenski boltinn