Slóvenía

Slóvenía

Höfuðborg: Ljubljana. Mannfjöldi: 2,1 milljónir (2025). Flatarmál: 20.273 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

For­seti Slóveníu mætir á af­mælis­degi Vig­dísar

Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, kemur til landsins þann 15. apríl í tengslum við árlegt Velsældarþing í Reykjavík. Þar tekur hún ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þátt í samtali um leiðtoga í breyttum heimi í Veröld, húsi Vigdísar, en dagurinn er einmitt afmælisdagur Vigdísar Finnbogadóttur. 

Innlent
Fréttamynd

Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu

Ísraelska leyniþjónustufyrirtækið Black Cube er sakað um leka upptökum sem var aflað með leynilegu eftirliti og hlerunum til þess að koma höggi á forsætisráðherra Slóveníu rétt fyrir kosningar. Sama fyrirtæki njósnaði um son íslensks þingmanns og kom leynilegum upptökum af honum í umferð.

Erlent
Fréttamynd

Hvetja stjórn­völd í Ís­rael til að breyta stefnu sinni tafar­laust

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirritaði í dag yfirlýsingu með leiðtogum sex annarra ríkja þar sem þeir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa. Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman.

Innlent
Fréttamynd

„Hefðum viljað sjá stóru löndin taka stærri skref í átt að mann­úð á Gasa“

„Því fleiri lönd sem tala skýrt fyrir því að Ísraelar verði að koma að mannúðaraðstoð á Gasa því betra,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Hún og utanríkisráðherrar fimm annarra Evrópuríkja sendu í morgun frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa. 

Fréttir
Fréttamynd

Sex evrópskir utan­ríkis­ráð­herrar skora á Ísrael

Utanríkisráðherra Íslands og fimm annarra Evrópuríkja hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa. Ráðherrarnir hafna jafnframt „öllum hugmyndum um brottflutning Palestínumanna frá Gaza enda væru það brot á alþjóðalögum,“ segir meðal annars í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um málið.

Innlent
Fréttamynd

Gangast loksins við leyni­þjónustu­fólki eftir fanga­skiptin

Stjórnvöld í Kreml staðfestu í fyrsta skipti í dag að sumir þeirra fanga sem fengu að snúa til Rússlands í sögulegum fangaskiptum í gær hafi verið útsendarar leyniþjónustunnar. Þeirra á meðal er morðingi sem Rússar sóru af sér eftir morð í Berlín árið 2019.

Erlent
Fréttamynd

Um­fangs­mikil fanga­skipti gætu verið á næsta leiti

Merki eru um umfangsmikil fangaskipti á milli Rússlands og Hvíta-Rússlands annars vegar og Bandaríkjanna, Þýskalands og Slóveníu hins vegar. Hermt er að blaðamaður Wall Street Journal sem Rússar handtóku í fyrra verði hluti af skiptunum.

Erlent
Fréttamynd

Brott­fall ungra karla á Ís­landi úr námi hæst í Evrópu

Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja. 

Innlent
Fréttamynd

Kveikt var í styttu af Melania Trump

Kveikt var í viðarskúlptúr af Melaniu Trump forsetafrú Bandaríkjanna nærri Sevnica, heimabæ hennar í Slóveníu aðfaranótt 4. júlí, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna.

Erlent
  • «
  • 1
  • 2