Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. mars 2026 16:21 Luka Doncic og Anamaria Goltes eiga tvær dætur saman og hafa verið par í tíu ár. Nú virðist því sambandi lokið, þau hafa slitið trúlofun sinni og hafið forræðisdeilu. Slóvenska körfuboltastjarnan Luka Dončić, sem spilar fyrir Los Angeles Lakers í NBA, og slóvenska fyrirsætan Anamaria Goltes hafa slitið trúlofun sinni eftir tíu ára samband. Þau eru sögð deila um forræði yfir dætrum sínum tveimur sem Dončić hefur ekki séð síðan í desember.
Dončić greindi íþróttafréttamiðlinum ESPN frá ákvörðun sinni um að slíta trúlofuninni í gær. Heimildarmenn ESPN herma að hörð forræðisdeila sé hafin og má ætla að þær upplýsingar komi frá körfuboltamanninum sjálfum. Luka hefur spilað átta tímabil í NBA-deildinni.Getty „Ég elska dætur mínar meira en nokkuð annað og ég hef gert allt sem ég get svo þær geti verið hjá mér í Bandaríkjunum yfir tímabilið en það hefur ekki verið mögulegt. Svo nýlega tók ég þá erfiðu ákvörðun að slíta trúlofun minni,“ sagði Dončić í yfirlýsingu til ESPN. „Allt sem ég geri er fyrir hamingju dætra minna og ég mun alltaf berjast fyrir því að vera með þeim og gefa þeim besta mögulega lífið sem ég get,“ sagði hann um dæturnar Gabríelu (fædd í nóvember 2023) og Oliviu (fædd í desember 2025). TMZ greindi frá því fyrr í gær að Goltes hefði sóst eftir meðlagi frá Dončić í Kaliforníu-ríki. Í skjölum sem TMZ hefur undir höndunum kemur fram að Anamaria hafi flutt aftur til Slóveníu í maí 2025 og þau verið hjá henni síðan. Hringdi í lögregluna á spítalanum Dončić fór á skeljarnar í júlí 2023 og bað Goltes að giftast sér en þau höfðu þá verið saman síðan 2016 og þekkst frá því þau voru börn. Fyrsta dóttir þeirra, Gabríela, fæddist í nóvember 2023 í Bandaríkjunum meðan Dončić spilaði fyrir Dallas Mavericks og önnur dóttir þeirra, Olivia, fæddist svo í desember 2025 í Slóveníu. Mynd af trúlofun Doncic og Goltes. Dončić var í burtu frá Lakers-liðinu í byrjun desember meðan hann ferðaðist til Slóveníu til að vera viðstaddur fæðingu dóttur sinnar. Þar hafi Dončić beðið barnsmóður sína um að fá að taka Gabríelu með sér til Bandaríkjanna. ESPN hefur eftir heimildarmönnum úr búðum Dončić að parið hafi rifist í kjölfarið, Goltes hringt á lögregluna og Dončić yfirgefið spítalann. Í umfjöllun ESPN kemur fram að lögregluþjónar hafi rætt við Goltes á fæðingardeildinni og Dončić á heimili hans. Samkvæmt lögregluskýrslu urðu lögregluþjónarnir „ekki varir við nein ummerki um lögbrot“ Dončić. Hann hafi flogið aftur til Bandaríkjanna síðar sama dag og ekki séð dætur sínar síðan. „Ég veit ekki einu sinni hvernig á að lýsa því,“ sagði Doncic aðspurður út í ferðalag sitt til Slóveníu. „Ég var þarna vegna fæðingar dóttur minnar, svo það er mjög dýrmætt. En það var vissulega rússíbani.“ Goltes eyddi öllum myndum af sér með Dončić af Instagram-síðu sinni í síðustu viku sem hefur ýtt undir sögusagnir um samband og sambandsslit parsins. Hvorki Dončić né Goltes hafa tjáð sig um málið opinberlega.
Tímamót Ástin og lífið Körfubolti NBA Slóvenía Bandaríkin Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira