Uppgjörið: Valur - Njarðvík 88-76 | Valsmenn sterkari í brakinu Siggeir Ævarsson skrifar 30. janúar 2025 18:31 Kristinn Pálsson var stigahæstur Valsmanna Vísir/Hulda Margrét Það voru tvö lið á skriði sem mættust í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld og ljóst að eitthvað varð undan að láta. Njarðvíkingar með fjóra sigra í röð og Valsmenn með tvo. Eitthvað þurfti undan að láta og nú hafa Valsmenn unnið þrjá leiki í röð. Hjálmar fær aðhlynningu frá sjúkraþjálfaranum. Valsmenn mega eiginlega ekki verið frekari meiðslum, en Hjálmar kláraði þó leikinn í kvöldVísir/Hulda Margrét Leikurinn fór fjörlega af stað þar sem bæði lið létu þristunum rigna, þó sérstaklega gestirnir frá Njarðvík sem settu niður sex slíka. Það var lítið um varnar í byrjun og staðan 25-28 í fjörugum leik eftir að Kári Jónsson skoraði síðustu körfu fyrsta leikhluta eftir öflugt einstaklingsframtak. Mikla byrjaði leikinn velVísir/Hulda Margrét Varnarlega voru Valsmenn beittari í öðrum leikhluta en sóknarlega voru hlutirnir ekki að ganga jafn vel. Þeir skutu mikið en hittu lítið. Njarðvíkingar náðu upp tíu stiga forskoti en Joshua Jefferson lagaði stöðuna til fyrir hálfleik með þristi, staðan 41-48 í hálfleik. Njarðvíkingar virtust ætla að fara að síga fram úr þegar þeir komu muninum upp í tólf stig en Valsmenn svöruðu áhlaupinu með áhlaupi og þristur frá Kristni Pálssyni þýddi að munurinn var aðeins þrjú stig fyrir lokaleikhlutann, 62-65. Kári að tapa boltanum? Mögulega, hann tapaði fimm boltum í kvöldVísir/Hulda Margrét Áhlaupið teygði sig að lokum milli leikhluta og varð alls 14-0 þar sem Valsmenn breyttu stöðunni úr 59-65 í 73-65. Það áhlaup dugði þeim til að landa sigrinum í kvöld en heimamenn spiluðu virkilega vel síðustu 14 mínútur leiksins eða svo meðan að Njarðvíkingar virtust vera algjörlega heillum horfnir eftir góða byrjun. Veigar Páll á flugi en of seinnVísir/Hulda Margrét Einhverskonar stigmögnun varð í varnarleik Valsara eftir því sem leið á leikinn en Njarðvíkingar skoruðu aðeins ellefu stig í fjórða leikhluta og 28 samanlagt í seinni hálfleik, eða jafn mikið og liðið skoraði í fyrsta leikhluta. Vörnin skóp þennan sigur fyrir heimamenn eins og svo oft áður og lokatölur á 88-76 á Hlíðarenda. Shabazz var frábær, framan af leikVísir/Hulda Margrét Atvik leiksins Þegar leikurinn var rétt skriðinn af stað fraus tölfræðitölvan. Megnið af leikhlutanum var því stattað með handafli á blað og síðan keyrt inn í kerfið á milli leikhluta. Smá töf varð á leiknum út af þessu en það verður að gefa stattara kvöldsins kredit fyrir að bregðast skjótt við og ná að rétta tölfræðiskútuna af við þessar óvæntu aðstæður. Stjörnur og skúrkar Kiddi Páls var öflugur í kvöldVísir/Hulda Margrét Kristinn Pálsson leiddi sóknarleik Valsmanna í kvöld, skilaði 20 stigum og setti niður fimm þrista. Bætti svo við tólf fráköstum. Þá átti Joshua Jefferson virkilega skilvirkar 14 mínútur af bekknum og skoraði 18 stig. Joshua Jefferson var sannarlega betri en enginn í kvöldVísir/Hulda Margrét Hjá Njarðvík var Veigar Páll Alexandersson stigahæstur með 18 stig. Khalil Shabazz og Dominykas Milka fóru vel af stað en skoruðu samanlagt aðeins tíu stig í seinni hálfleik. Dómararnir Kristinn Óskarsson, Bjarki Þór Davíðsson og Ingi Björn Jónsson voru á flautunum í kvöld. Þeir komust vel frá verkefninu, leyfðu mönnum að pústa milli þess sem þeir deildu út verðskulduðum tæknivillum fyrir pústra og tuð. Dómarar kvöldsins ráðu ráðum sínum, Bjarki virðist vera í öngum sínum yfir stöðu málaVísir/Hulda Margrét Stemming og umgjörð Það var afskaplega rólegt yfir stúkunni í kvöld þó það hafi verið ágætlega mætt á Hlíðarenda. Það voru helst ungir stuðningsmenn sem létu í sér heyra en annars voru áhorfendur full rólegir fyrir minn smekk. Viðtöl Kristófer Acox: „Líður eins og ég sé kannski svona 75 prósent“ Kristófer Acox er óðum að komast í gang eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hann skilaði 24 mínútum í kvöld í sínum fjórða leik eftir meiðslin en viðurkenndi að hann ætti enn eitthvað í land að verða hundrað prósent. Kristó er kominn aftur og er ca 75% að eigin sögnVísir/Hulda Margrét „Ég er alveg þreyttur í dag. Ég væri að ljúga ef ég myndi segja annað. Nei, nei. Mér líður ágætlega. Ég er hægt og rólega að komast í gang. Mér líður eins og ég sé kannski svona 75 prósent eins og staðan er í dag. Mér fannst ég samt hreyfa mig ágætlega í dag. Við spiluðum náttúrulega bikarleikinn í síðustu viku, þetta voru held ég einhverjir þrír leikir á átta dögum þannig að ég er búinn að hafa lítinn tíma á milli leikja til að jafna mig. Mér líður ágætlega en ég finn alveg fyrir þessu eins og núna eftir leikinn.“ Finnur Freyr talaði um það fyrir leik að Kristófer hefði nálgast endurhæfinguna af mikilli fagmennsku, en Kristó viðurkenndi að það hefði alveg kitlað að fara fyrr af stað en skynsemin hefði að lokum fengið að ráða. „Auðvitað var erfitt að vera á hliðarlínunni og líka miðað við gengið hjá liðinu framan af. Manni fannst eins og maður væri tilbúinn og farinn að stelast aðeins fyrr á æfingar og svona. En ég fann það líka þar að mér fannst ég vera klár í hausnum en líkaminn var ekki að leyfa það. Ég ákvað bara að flýta mér hægt og held að það hafi bara skilað góðu. Nú næ ég allavega að spila mínútur og skila einhverju af mér. Það er auðvitað erfitt, manni langar að gera alltaf meira og spila meira en vonandi kemur það bara bara á næstu vikum.“ Finnur Freyr: „Menn vinna fyrir hvern annan og þá einhvern veginn smellur þetta“ Finnur Freyr fer yfir málinVísir/Hulda Margrét Það má með sanni segja að varnarleikur Valsmanna hafi ráðið úrslitum í kvöld og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var sérstaklega sáttur með varnarleikinn í seinni hálfleik án þess að geta sett fingurinn nákvæmlega á hvað það var sem breytti því hvernig hans menn spiluðu. „Við fáum á okkur 28 stig í fyrsta leikhluta og þeir eru komnir með 48 í hálfleik. Það segir sig sjálft að við náum að halda þeim í 32 í seinni að það skiptir ansi miklu máli. Strákarnir gerðu vel að aðlagast og læra á hvað Njarðvíkingarnir gerðu vel í fyrri hálfleik og náðum að loka vel á þá. Krafturinn kom líka meira og traustið á milli manna.“ „Svo kemur bara einhver fílingur, erfitt að segja nákvæmlega hvað það er. Það kemur einhver fílingur og tengsl og menn byrja að lesa hvern annan og vinna fyrir hvern annan og þá einhvern veginn smellur þetta.“ Sóknarlega voru Valsmenn í stuði þegar liðið komst í 14-0 áhlaup en Finnur vildi þó meina að færin hefðu verið til staðar allan leikinn. „Mér fannst við vera að skapa okkur bara fín skot allan leikinn. Njarðvík er að taka töluverða áhættu með varnarleiknum sínum. Við lögðum bara upp með það að stundum getur maður leitað að lausnum en stundum verður maður bara að taka það sem vörnin gefur þér. Sérstaklega þegar við náðum að hreyfa boltann aðeins betur vorum við að opna þá vel og búa til fín skot fyrir skotmennina okkar. Maður fann það þegar sjálfstraustið sóknarlega kom var það betra í vörninni líka.“ Valsmenn eru í augnablikinu með tvo bandaríska leikmenn í sínum herbúðum en eins og lesendur sennilega vita geta þeir ekki verið báðir inni á vellinum í einu. Finnur vildi ekkert gefa upp um hvort hann ætlaði að halda þeim báðum en meðan meiðsli væru að hrjá liðið væri gott að hafa þá báða til taks. „Við bara erum að skoða þetta. Josh kemur hérna á einhverjum forsendum sem við erum búnir að tala um áður. Hann klárlega var frábær í kvöld, Sherif sömuleiðis með mjög mörg góð móment bæði í vörn og sókn. Þetta er svona, sérstaklega með Taiwo og Booker úti þá er þetta gríðarlega sterkur sigur. Já já, sjáum til.“ Bónus-deild karla Valur UMF Njarðvík
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum