Handbolti

Ó­sam­mála Al­freð: „Auð­vitað er þetta bak­slag“

Sindri Sverrisson skrifar
Alfreð Gíslason og hans menn eru úr leik á HM.
Alfreð Gíslason og hans menn eru úr leik á HM. Getty/Soeren Stache

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu eru úr leik á HM í handbolta, eftir tap gegn Portúgal í framlengdum spennutrylli í gær. Fyrrverandi landsliðsmenn Þýskalands eru algjörlega ósammála Alfreð um hvað þýði að hafa fallið úr leik í 8-liða úrslitum.

Alfreð stýrði Þjóðverjum til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í París síðasta sumar og þeir voru óhemju nálægt því að spila einnig um verðlaun á HM.

Þýskaland hefur ekki náð verðlaunasæti á HM síðan liðið vann gull á heimavelli árið 2007, en fyrrverandi landsliðsmennirnir Stefan Kretzschmar, Michael Kraus og Pascal Hens eru sammála um að 6. sætið í ár sé hrein og klár vonbrigði.

Um þetta ræddu þeir í þættinum Harzblut og virtust ein ummæli Alfreðs sérstaklega fara fyrir brjóstið hjá þeim. Samkvæmt þýska miðlinum Kicker sagði Alfreð: „Þetta er ekki bakslag,“ eftir tapið sára gegn Portúgal í gær.

„Kjaftæði. Auðvitað er þetta bakslag,“ sagði Kraus sem varð heimsmeistari árið 2007. Hann var einnig ósáttur við að Alfreð, sem sagði þýska liðið ekki eins ferskt nú og á Ólympíuleikunum, hefði sagt erfitt að glíma við það álag sem var á Renars Uscins í stöðu hægri skyttu.

„Spilaði Uscins of mikið? Hvað þá með [Mathias] Gidsel [hægri skyttu Danmerkur]? Spilar hann ekki of mikið. Manni líður eins og hann spili 70 mínútur í hverjum leik,“ sagði Kraus.

Kretzschmar var sammála Kraus: „Auðvitað er þetta bakslag fyrir þýskan handbolta. Það er óhætt að segja það.“

Alfreð ætlar að starfa áfram

Alfreð, sem er 65 ára, var spurður út í framtíð sína með þýska landsliðinu og hvort að hann hefði enn krafta til að standa við samning sinn sem gildir til ársins 2027. „Af hverju ekki?“ spurði Alfreð.

„Ég sinni þessu starfi því ég elska handbolta, og af því að ég er stoltur afa að starfa fyrir Þýskaland og með þessu liði,“ sagði Alfreð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×