Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Njarðvík tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna fyrr í kvöld. Haukar sáu til þess að úrslitaeinvígið fari í fjóra leiki allavega. Heimakonur læstu varnarleiknum algjörlega og fóru með 77-69 sigur. Fjórði leikurinn verður á sunnudag í Njarðvík. Körfubolti 14.5.2026 18:33
Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Afturelding rústaði Njarðvík með 5-2 sigri í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Á sama tíma vann Víkingur 2-0 gegn HK og tryggði sig einnig áfram í átta liða úrslitin. Fótbolti 13.5.2026 21:34
Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Breiðablik er áfram með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar kvenna eftir dramatískan sigur á Val, 3-2, í gær. Tveir aðrir leikir fóru þá fram en þeir unnust báðir á útivelli. Íslenski boltinn 12.5.2026 15:45
Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Íslenski boltinn 11.5.2026 18:31
Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Njarðvík stal heimavallarréttinum í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna með því að vinna tólf stiga sigur, 80-92, á ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum í kvöld. Leikmenn Njarðvíkur mættu mun ákveðnari til leiks og höfðu stjórn á leiknum nær allan tímann. Körfubolti 8. maí 2026 22:57
Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Njarðvíkingar unnu í kvöld sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Lengjudeildinni í fótbolta er liðið lagði Fylki að velli í Njarðvík 2-0. Þriðja umferð deildarinnar hófst í kvöld. Íslenski boltinn 8. maí 2026 22:37
Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara Andrea Mist Pálsdóttir sýndi spyrnugetu sína á sínum gömlu heimaslóðum á Akureyri í gær, þegar hún skoraði tvö mörk beint úr hornspyrnu. Íslenski boltinn 7. maí 2026 09:29
Gylfi: „Dómararnir í þessum leik virðast ekki hafa almenna þekkingu“ Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík var mjög svekktur vegna ýmissa atriða varðandi tap sinna kvenna í kvöld gegn FH. Leikurinn endaði með 2-1 sigri heimakvenna en þjálfarinn gat alveg verið stoltur af sínum konum. Fótbolti 6. maí 2026 21:46
FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum FH tók á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík og náði í fyrsta sigur tímabilsins og það í fyrsta heimaleik tímabilsins. FH náði loksins að skora tvö mörk en Ingibjörg Magnúsdóttir skoraði sigurmark heimakvenna um miðjan seinni hálfleik. Staðan 2-1 að lokum. Íslenski boltinn 6. maí 2026 21:07
Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Hulda Marí Agnarsdóttir lagði sín lóð á vogaskálarnar til að tryggja Njarðvíkurkonum farseðil í úrslitaeinvígið gegn Haukum þetta tímabilið. Hún skoraði átta stig í 83-72 sigri Njarðvíkinga á Grindavík í oddaleik í undanúrslitum Bónus deildar kvenna. Körfubolti 5. maí 2026 21:17
Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Njarðvík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Farseðillinn var tryggður eftir oddaleik gegn Grindavík í kvöld í IceMar höllinni. Njarðvík kafsigldi Grindavík á löngum köflum og uppskar verðskuldaðan 83-72 sigur. Körfubolti 5. maí 2026 20:53
Trúin og traustið innan hópsins eigi eftir að skila liðinu áfram „Ég er bara fullur tilhlökkunar og ótrúlega spenntur fyrir kvöldinu. Þetta eru sérstakir leikir, oddaleikir, og við fórum í einn slíkan síðastliðið vor og mér finnst stelpurnar hafa sýnt mikla yfirvegun og mikið hugrekki í gegnum það mótlæti sem hefur mætt í þessari seríu,“ segir Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga fyrir oddaleikinn í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindavík í IceMar höllinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Íslands. Sport 5. maí 2026 13:32
„Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“ Körfubolti 4. maí 2026 09:00
Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Grindavík tók á móti Njarðvík í fjórða leik liðana í undanúrslitum Bónus deild kvenna í HS Orku höllinni í kvöld. Grindavík gat tryggt sig í úrslit með sigri á meðan Njarðvík varð að vinna til að fara í leik fimm. Körfubolti 1. maí 2026 21:33
„Vorum alltaf að segja, næsta kerfi, halda áfram og halda haus“ Njarðvík tryggði sér oddaleik í undanúrslitum Bónus deild kvenna þegar þær sóttu góðan sigur í Grindavík 68-72. Danielle Rodriguez var frábær í liði Njarðvíkur og ræddi við okkur eftir leik. Sport 1. maí 2026 21:32
Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Njarðvíkingar mega vera ósáttir eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Grindavík í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Lærisveinar Davíðs Smára Lamude komu boltanum yfir marklínuna en mark var ekki dæmt. Íslenski boltinn 1. maí 2026 16:05
Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Mikið fjör var í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild kvenna og dramatík. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur unnu sinn fyrsta leik, Þóttarar höfðu betur gegn FH í endurkomusigri og kvöldið áður hafði Stjarnan betur gegn Val. Mörkin úr þessum leikjum má sjá hér. Íslenski boltinn 1. maí 2026 11:00
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Hér fer fram bein textalýsing frá leik Grindavíkur/Njarðvíkur gegn Þór/KA í 2.umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á JBÓ vellinum í Njarðvík klukkan hálf sex. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3. Íslenski boltinn 30. apríl 2026 20:15
Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Rúnar Ingi Erlingsson og Logi Gunnarsson munu halda áfram þjálfun Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta næstu tvö tímabilin. Körfubolti 27. apríl 2026 22:36
Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér Grindavík sækir Njarðvík heim í leik þrjú í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Grindavík leiðir einvígið 2-0 og getur klárað það með sigri í kvöld. Leikur liðanna hefst klukkan 19:15 og er sýndur beint á Sýn Sport Ísland 3. Körfubolti 27. apríl 2026 21:48
„Aldrei verið sópað áður og ég ætlaði ekki að byrja á því í kvöld“ Njarðvík minnkaði muninn í einvígi sínu gegn Grindavík í 2-1 með frábærum sex stiga sigri 94-88 í IceMar-höllinni í kvöld. Brittany Dinkins var að vanda áberandi í liði Njarðvíkur og ræddi hún við Vísi eftir leik. Sport 27. apríl 2026 21:43
Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Maci Nicole Teater, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, fékk rautt spjald fyrir að rífa í hár Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur, leikmanns Vals, í leik liðanna í Bestu deild kvenna í gær. Sérfræðingar Bestu marka kvenna skilja ekki hvað Teater gekk til. Íslenski boltinn 26. apríl 2026 14:36
Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. Körfubolti 26. apríl 2026 09:31
Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Valur og Grindavík/Njarðvík mættust í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag á Hlíðarenda. Skemmtilegur leikur þar sem Valur unnu harðsóttan sigur og tóku öll stigin þrjú. Íslenski boltinn 25. apríl 2026 19:23
Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Þróttur vann 2-0 sigur á Njarðvík í 1. umferð Lengjudeildar karla í dag. Bikarmeistarar Vestra og Grindavík skildu jöfn á Ísafirði, 1-1. Íslenski boltinn 25. apríl 2026 16:09
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn