Bakþankar

Svaka gott siðferði

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Það er viss fegurð í rusli úti við veginn og reykjandi ökumanni ökumanni í umferðinni með gluggana uppi árið 2011. Það sem er á skjön fangar augað og hrífur - nú eða stuðar. Sum erum við sérstaklega veik fyrir misfellum og þyrstir hreinlega í þær í einsleitu umhverfi. Fögnum illa hirtum grasbletti í Garðabæ og skoppandi silíkonbrjóstum í Árnagarði. Allt í stíl getur verið óbærilega leiðinlegt. Þess vegna líður mér hvergi betur en á Hlemmi eða í biðröð eftir Lottó.

Bakþankar

Vor og hús

Davíð Þór Jónsson skrifar

Það fer óneitanlega pínulítið í taugarnar á mér þegar Íslendingar dæsa og stynja af aðdáun á útlensku náttúrufari.

Bakþankar

Skammaryrðið stelpa

Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar

Fyrir löngu sætti ég mig við það að fyrir mörgum eru íþróttir og karlmennska tengd órjúfanlegum böndum. Ég hef nefnilega fylgst með fótbolta frá því að ég var lítil. Allt frá þeim tíma hef ég þurft að glíma við þá skoðun að íþróttir séu fyrir karla, sérstaklega fótbolti. Þegar ég var sex ára og fór með pabba á völlinn var ég ekki spurð að því hver væri bestur í liðinu – heldur hver væri sætastur. Þó að við pabbi reyndum í sameiningu að koma fólki í skilning um að ég hefði vit á þessu til jafns við önnur börn gekk það ekki alltaf.

Bakþankar

Verk í vinnslu

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Ákveðinn hóp fólks mætti kalla forfallna dyttara. Þá sem dunda við að dytta að einhverju öllum stundum og fellur aldrei verk úr hendi.

Bakþankar

Hver sængaði hjá hverjum?

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Tvö nöfn eru á allra vörum í Bretlandi um þessar mundir; annars vegar nafn heimsfrægs bresks leikara sem hélt framhjá eiginkonu sinni með sömu vændiskonu og sögð er hafa þjónustað Wayne Rooney; hins vegar nafn fótboltahetju sem hélt framhjá konu sinni með þátttakanda úr Big Brother raunveruleikaþættinum. En hverjar eru þessar breysku stjörnur?

Bakþankar

Fréttir úr sortanum

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Ógæfu Íslands verður allt að vopni, æpti ég upp yfir mig í gær þegar ég horfði á fréttir úr sortanum á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni. „Fyrst hrunið með tilheyrandi kaupmáttarrýrnun,

Bakþankar

Réttlæti siðaðra þjóða

Gerður Kristný skrifar

Undanfarnar vikur hefur athygli heimsbyggðarinnar beinst að Úganda, litlu ríki í Austur-Afríku sem miðað við smæð hefur verið furðu oft í fréttum frá því ég komst til vits á ára.

Bakþankar

Hinn hreini tónn

Sr. Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Vídalín og Laxness voru í Hörpu um helgina. Oft hef ég ekið framhjá þessum glerkletti, hugsað um sögu byggingarinnar og glímt við andstæðar kenndir hrifningar og harms. Ég gekk svo með elskunni minni yfir fallega trébrú og á Hörputorg. Fólksmergðin var eins og á þjóðhátíð. Litir og form glerhnullunganna heilluðu. Forskálinn, almenningurinn, kom á óvart vegna stærðar.

Bakþankar

Varnagli á pung

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar

Ég er því fegin að eldast. Ég geri ekki lítið úr fórnunum; tannskemmd sem ég kom auga á um daginn og hef ekki enn tímt að láta gera við (ég veit þetta hljómar ekki smart), afar sérstakt útlit þegar ég vakna á morgnana og lít í spegil, nokkrar tegundir af lyfjum (sem ég man aldrei hvort ég er búin að taka eða ekki því minnisleysi er líka farið að gera vart við sig).

Bakþankar

Húsið okkar hún Harpa

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Ég var ein af þeim sem áttu ekki til orð yfir öllum þeim milljörðum sem kostnaður við byggingu Hörpunnar fór fram úr áætlun. Fussaði og sveiaði yfir bruðli og flottræfilshætti og fór í fýlu í hvert sinn sem ég keyrði framhjá byggingarsvæðinu við höfnina. „Réttast hefði verið að jafna kumbaldann við jörðu," tautaði ég með sjálfri mér. Gegnum árin hef ég ekki verið tíður gestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einungis nokkrum sinnum farið í Óperuna, þá í ódýrustu sæti uppi undir rjáfri.

Bakþankar

"Cheated by Iceland"

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Gljáfægðir liðu búðargluggarnir hjá, fullir af handgerðu súkkulaði og hátískufatnaði. Fyrirhafnarlaus fegurð geislaði af farðalitlum andlitum Parísar-skvísanna. Eftir bökkum Signu stikuðu franskir herramenn svo ábúðarfullir á svip að um huga þeirra hlutu að fara hugsanir samboðnar Descartes þótt umbúðirnar jöfnuðust á við Olivier Martinez. Þar sem ég sat í aftursæti leigubíls sem ók mér frá aðallestarstöð Parísarborgar á hótelið sem ég hugðist dvelja á eina helgi hríslaðist um mig eftirvænting sem aðeins yfirvofandi „croissant"-át og biðin eftir kampavíni geta framkallað. Ekkert gat raskað fullkomleika helgarinnar sem fram undan var. Eða næstum ekkert.

Bakþankar

Tandurhrein blekking

Bergsteinn Sigurðsson skrifar

Á dögunum sótti ég námskeið ásamt norrænum kollegum mínum í New York. Meðal staða sem við heimsóttum í ferðinni var Scandinavian House, stofnun sem vinnur að framgangi norrænnar menningar vestra.

Bakþankar

Glötuð æska

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Körfuboltamaðurinn Derrick Rose var í vikunni valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Rose er yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að hljóta þennan heiður, en hann er aðeins 22 ára gamall – fæddur í oktbóber árið 1988.

Bakþankar

Myglað blátt blóð

Atli Fannar Bjarkason skrifar

Frá því í nóvember í fyrra hefur heimsbyggðin fylgst með undirbúningi brúðkaups eldri sonar Karls Bretaprins og unnustu hans, Kate Middleton. Fólk virðist hafa gríðarlegan áhuga á samruna parsins og fjölmiðlar um allan heim birta fréttir af brúðkaupinu daglega. Stærsta fréttin hefur hingað til verið sú að parið ætlar ekki að bjóða upp á bjór í veislunni – aðeins kampavín. Eins og það sé einhver leið að sitja undir ræðuhöldum breskra hefðarmanna án þess að fá einn ískaldan.

Bakþankar

Það kallast einræði

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Ef ég gæti raðað saman hinni fullkomnu útgáfu af sjálfri mér myndi ég velja mér til sjálfsbótar varir og barm Angelinu Jolie, leggi Gwyneth Paltrow og afturenda Jennifer Lopez. Töluvert hefur borið á óskhyggju af svipuðum toga í pólitískri umræðu undanfarið. Spáin um uppstokkun í flokkakerfinu sem reglulega skýtur upp kollinum hefur tekið að láta á sér kræla og með henni pólitískir dagdraumar um fullkomlega samsetta stjórnmálaflokka. Við kvöldverðarborð um land allt er rifist um hverjum skuli sparka úr þeim flokkum sem nú starfa, hverjum skuli halda og hverja þurfi að færa milli liða.

Bakþankar

Aftur kemur vor í dal

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Snjókorn falla – á allt og alla – og nú er hátíð kærleika og friðar nýliðin. Reyndar ekki hátíðin sem getur um í texta þessa jólalags heldur hin helsta trúarhátíðin, þið vitið, sú sem á að fagna vorkomu, nýgræðingi, sáningu, upprisu þess sem hefur hvílt í moldinni, lengri dögum, bjartari nóttum, vori.

Bakþankar