Bílaleigan Hertz sagði upp öllu starfsfólki sínu í lok september og hefðu uppsagnirnar að óbreyttu tekið gildi um næstu mánaðarmót.
Sigfús B. Sigfússon forstjóri Hertz segir það hafa verið varúðarráðstöfun.
„Það var erfið ákvörðun að segja öllum upp en við sjáum breytingar og bjartsýni framundan þannig að nú hefst ráðningarferlið aftur,“ segir Sigfús.
Hann segir síðustu mánuði hafi skammtímaleiga bíla legið niðri en önnur verkefni gengið vel.
„Skammtímaleigan hefur nánast legið niðri en langtímaleiga hefur gengið vel og við höfum selt mikið af notuðum bílum,“ segir hann.
Sigfús segir að fyrirtækið hafi nýtt sér ýmis úrræði stjórnvalda vegna Covid-19.
„Við höfum nýtt ríkisstyrkina þ.e. uppsagnaúrræðið og það hefur hjálpa okkur gríðarlega í þessu öllu saman. Þá var starfsfólk á hlutabótaleið áður en til uppsagna kom,“ segir hann.
Samkvæmt lögum þarf fyrirtæki að hafa orðið fyrir 75% tekjufalli á ákveðni tímabili til að geta nýtt uppsagnastuðning stjórnvalda. Sigrús segir að það eigi við um Hertz.

Hann er bjartsýnn á framhaldið og áætlar að kaupa fjölmarga nýja bíla á næstunni.
„Við ætlum að fjárfest í um 600 bílum, plús mínus tvö hundruð bílum,“ segir hann.
Ágætur innanlandsmarkaður í sumar
Hertz, áður Bílaleiga Flugleiða hefur samtals fengið um 54 milljónir króna í uppsagnastyrki samkvæmt opinberum lista á Skattinum. Aðrar bílaleigur á listanum eru t.d. AVIS/Budget bílaleigan, CampEasy ehf, Kú Kú Campers ehf., MyCar ehf, Lotus Car Rental, Blue Car Rental, Touring Cars Iceland, Happy Campers ehf, Icerental 4x4 ehf, Motorhome ehf, Kynnisferðir, Berg, Geysir og Ísak.
Í gær kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 að aðeins væru fjórar aðra bílaleigur á listanum en eins og kemur fram hér að ofan eru þær fleiri.
Það er hlutfallslega lítið en alls voru um 140 bílaleigur í landinu 2018 samkvæmt lista frá Samgöngustofu.
388 fyrirtæki hafa nýtt sér uppsagnaúrræði stjórnvalda og ríkið greitt samtals um 11,2 milljarða króna.
Bergþór Karlsson formaður bílaleigunefndar SAF og framkvæmdastjóri Höldurs sagði í samtali við fréttastofu að ástæðan fyrir því hvað fáar bílaleigur hafi nýtt sér úrræðið að innanlandsmarkaður hafi verið ágætur í sumar og önnur verkefni gengið þokkalega. Til að mynda hafi Höldur getað haldið í nánast alla sína 190 starfsmenn og haldið uppsögnum í lágmarki.