Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Árni Sæberg skrifar 27. nóvember 2025 13:04 Gatnagerðargjöld eru hæst í Mosfellsbæ og á Akureyri. Vísir/Vilhelm Skattheimta í formi gatnagerðargjalda átta stærstu sveitarfélaganna hefur hækkað hressilega undanfarin ár og í sumum þeirra langt umfram hækkun almenns verðlags. Þegar litið er á þróun gatnagerðargjalda fyrir 100 fermetra íbúð í fjölbýli með stæði í bílakjallara má sjá að hún hefur í þessum sveitarfélögum að jafnaði hækkað um 67 prósent eða 1,8 milljónir króna á íbúð á tímabilinu frá 2020 til 2025. Á sama tíma hækkaði byggingarvísitalan um 37 prósent og hækkun gatnagerðagjalda er því talsvert umfram þá hækkun. Gatnagerðargjöld voru að jafnaði 2,7 milljónir króna á hverja 100 fermetra íbúð árið 2020 en voru komin í 4,5 milljónir króna árið 2025.
Þetta sýnir ný greining Samtaka iðnaðarins, sem fjallað er um á mannvirkjaþingi samtakanna í dag. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, fór af því tilefni yfir skattahækkanir sveitarfélaganna síðustu ár í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Gatnagerða- og byggingarréttargjöld hafa á undanförnum árum orðið sífellt stærri kostnaðarliður í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Fyrir fyrirtæki í íbúðaruppbyggingu skiptir fyrirsjáanleiki, stöðugleiki og hófleg gjaldtaka sveitarfélaga miklu máli. Á sama tíma hefur gjaldtaka stærstu sveitarfélaga landsins tekið miklum breytingum til hækkunar, frá árinu 2020,“ segir í fréttatilkynningu um greininguna. Vísitalan hækkað um rúman þriðjung Sveitarfélögin sem greiningin tekur til séu átta stærstu sveitarfélög landsins; Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Reykjanesbær, Garðabær, Akureyri, Mosfellsbær og Árborg. Í greiningunni sé aðeins fjallað um uppbyggingu íbúða í fjölbýlishúsum en hún hafi verið langstærsti hluti uppbyggingar á síðustu árum. Gatnagerðargjöld hafi hækkað umtalsvert í nær öllum stærstu sveitarfélögum landsins frá ársbyrjun 2020 til dagsins í dag en hækkanirnar á tímabilinu skýrist fyrst og fremst af tvennu, hækkun byggingarvísitölu og breytingum á álagningarhlutfalli sveitarfélaga. Hækkanir á gatnagerðargjöldum á árunum 2020 til 2025 ráðist annars vegar af 37 prósenta hækkun á byggingarvísitölu og hins vegar af breytingum sveitarfélaga á álagningarhlutfalli, sem geti að hámarki verið 15 prósent af verðgrunni fyrir gatnagerðargjöld. Byggingarvísitala hafi hækkað um 37 prósent frá ársbyrjun 2020 og sú hækkun endurspeglist í hærri gatnagerðargjöldum allra sveitarfélaga. Þótt vísitöluhækkunin skýri hluta þróunarinnar hafi mörg sveitarfélög á sama tíma hækkað álagningarhlutfallið verulega, eða haldið því í hámarki, sem hafi leitt til umtalsvert meiri gjaldtöku og þannig aukið kostnað við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Nýta heimildina á ólíkan hátt Þá segir að sveitarfélögin hagi sér með mjög ólíkum hætti með tilliti til þessarar heimildar. Mosfellsbær og Akureyri séu bæði með álagningarhlutfallið í lögbundnu hámarki, 15 prósent. Mosfellsbær hafi haldið hlutfallinu óbreyttu frá 2020 en Akureyri hafi hækkað álagningarhlutfallið í nokkrum skrefum frá árinu 2020 en hlutfallið hafi staðið fimm prósentum í upphafi þess árs. Það skýri stærstan hluta aukinnar gjaldtöku sveitarfélagsins á gatnagerðargjöldum á tímabilinu. Önnur sveitarfélög hafi einnig hækkað álagningarhlutfall gatnagerðargjalda á tímabilinu. Kópavogsbær hafi hækkað hlutfallið úr tæpum 5 prósentum í 10 prósent og Reykjanesbær sömuleiðis. Reykjavík hafi hækkað hlutfallið á árinu úr 5,4 prósentum í 10 prósent fyrir íbúðir í fjölbýli og til viðbótar hafi verið samþykkt að innheimta gatnagerðargjald að fullu fyrir bílakjallara. Áður hafi verið innheimt gatnagerðargjöld af bílakjöllurum sem námu 10 prósentum af fullu gjaldi á hvern fermetra. Hin sveitarfélögin rukki 10 til 25 prósent af fullu gjaldi á hvern fermetra. Hafnarfjarðarkaupstaður sé eina sveitarfélagið sem lækkaði álagningarhlutfallið á tímabilinu sem um ræðir. Framan af hafi hlutfallið verið í lögbundnu hámarki en árið 2022 hafi það verið lækkað í 6 prósent. Sex milljónir á Akureyri og í Mosfellsbæ Hæst séu gatnagerðargjöldin í Mosfellsbæ og á Akureyri, þar sem gjöld miðað við 100 fermetra íbúð í fjölbýli með stæði í bílakjallara séu 6 milljónir króna á íbúð. Á Akureyri, þar sem gatnagerðargjöldin hafi hækkað mest á tímabilinu, nemur hækkunin um 4,6 milljónum króna. Í Mosfellsbæ hafi gjöldin hækkað um ríflega 1,6 milljónir króna, alfarið vegna hækkunar á byggingarvísitölu. Gatnagerðargjöld hafi hækkað næst mest í Reykjavík á tímabilinu, úr 1,5 milljónum króna í 4,7 milljónir, eða um tæplega 3,2 milljónir króna. Í Kópavogi og Reykjanesbæ hafi gjöldin einnig hækkað umtalsvert, eða um rúmar 2,5 milljónir króna á íbúð. Í Árborg hafi gatnagerðargjöld hækkað um ríflega 1,1 milljón og í Garðabæ um 900 þúsund. Þá sé Hafnarfjörður eina sveitarfélagið þar sem gjöldin hafa lækkað á tímabilinu, eða um nær 2 milljónir króna. Það sé vegna lækkunar á álagningarhlutfallinu, úr 15 prósentum í 6 prósent. Ný gjöld á geymslur sem þarf að byggja Gatnagerðargjöld af bílakjöllurum hafi einnig hækkað, sér í lagi í Reykjavíkurborg. Ef miðað er við að eitt bílastæði fylgi hverri íbúð þá hafi gatnagerðargjald á hverja íbúð hækkað úr 37 þúsund krónum í 942 þúsund krónur eftir nýlegar breytingar á gjaldskrá borgarinnar. Að auki hafi verið innleidd ný gjöld á bíla og hjólageymslur ofanjarðar, en nú sé orðin skylda að byggja hjólageymslur.
Sveitarstjórnarmál Skattar, tollar og gjöld Húsnæðismál Fasteignamarkaður Reykjavík Akureyri Hafnarfjörður Garðabær Kópavogur Mosfellsbær Árborg Reykjanesbær Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Sjá meira