Skoðun: Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa af­stöðu af þjóð

„Ég tel að í gjaldmiðilsmálum sé enginn valkostur við krónuna jafn sterkur og evran með ESB-aðild. Ég vil að við göngum hreint til verks í þessum málum og gerum upp á milli valkosta á næstu árum, en séum ekki að leika marga biðleiki. Ég er talsmaður þess að við tökum afstöðu til Evrópusambandsaðildar. Ég vil að þjóðin öll komi að því að taka afstöðu til þess hvort sá efnahagslegi stöðugleiki sem fengist með evru, sé eftirsóknarverður kostur með tilliti til þeirra fórna sem færa þarf.“

Skoðun
Fréttamynd

Höggdeyfir fyrir hverja?

Algeng rök fyrir því að halda í íslensku krónuna eru þau að hún virki sem mikilvægur höggdeyfir: að fljótandi gengi auðveldi hagkerfinu að laga sig að efnahagsáföllum; án sjálfstæðrar myntar þyrfti aðlögunin að fara fram með sársaukafyllri hætti gegnum ríkisfjármál og vinnumarkað.

Skoðun
Fréttamynd

Myndum borga fyrir inn­göngu Svart­fjalla­lands

Haft var eftir ónafngreindum háttsettum embættismanni ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) á sviði stækkunarmála á fréttavefnum Politico í gær að Ísland gæti hugsanlega gengið í sambandið samhliða Svartfjallalandi yrði samþykkt í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að setja stefnuna á inngöngu í það.

Skoðun
Fréttamynd

JÁ­kvæður kvik­mynda­fram­leiðandi

Ég starfa sem kvikmyndaframleiðandi og hef framleitt myndir á borð við Hrúta, Undir Trénu, Héraðið, Northern Comfort og Eldana. Ég hef sérhæft mig í framleiðslu íslenskra mynda í samframleiðslu við kvikmyndaframleiðendur í öðrum Evrópulöndum.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað ef ...?

Margir hafa þessa dagana skoðun á viðræðum um aðild að Evrópusambandinu (ESB), sem og áhyggjur af mögulegum aðildarviðræðum í framhaldinu og hugsanlegri aðild síðar meir. Í þessu máli eins og öðrum er mikilvægt að fylgja eigin sannfæringu en ekki skoðunum annarra. Rök hafa heyrst frá „já-liðum” en meira hefur verið um hræðsluáróður frá hinni fylkingunni.

Skoðun
Fréttamynd

Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar?

Ólafur Ragnar Grímsson hefur lagt fram nýja heimild í Evrópuumræðunni: hlátur tveggja nafnlausra manna í París. Í nýlegu viðtali sagði hann frá samtölum við tvo menn sem hann segir „gjörþekkja" starfsemi og eðli Evrópusambandsins.

Skoðun
Fréttamynd

Af sann­leiks­ást og vinnuréttindum

Mér hefur undanfarið verið æ oftar hugsað til Gróu gömlu á Leiti og séð hana fyrir mér liggjandi á meltunni og strjúkandi vömbina af ánægju með allan hálf-sannleikann sem nú ræður ríkjum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Öndum í poka! Ís­land verður í lagi

Frá því að ég var 16 ára gamall hef ég haft óþolandi tilhneigingu til að blanda mér í allt sem tengist pólitík. Ég hef hins vegar verið hikandi við að blanda mér í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Ekki vegna þess að mér finnist hún ekki mikilvæg heldur vegna þess hvað umræðan er fljót að detta í skotgrafahernað og upphrópanir þar sem fólki er ætlaður illur ásetningur eða annarlegir hagsmunir.

Skoðun
Fréttamynd

Hinir miklu alvitringar

Sjálfskipaðir alvitringar flykkjast nú á ritvöllinn og hlaðvörpin, fylla samfélagsmiðla af hinum eina sanna sannleik sem þau hafa kokkað upp undir höfuðleðrinu. Þau stofna heilu samtökin, búin að sameinast um heilaþvottinn eingöngu til að fá þig til að krossa við af eða á, nei eða já þann 29.ágúst.

Skoðun
Fréttamynd

Evrópuherinn og hlutur Ís­lendinga

Í kjölfar greinar undirritaðs, Evrópher, vígbúnaður og herskylda, í Morgunblaðinu 30. júlí sl. hefur orðið nokkur umræða á netinu og nú síðast í nýlegri grein Svans Sigurbjörnssonar hér á Vísi.

Skoðun
Fréttamynd

Mín kyn­slóð brást!

Ég hef verið í atvinnurekstri í tæp 40 ár og upplifað sveiflur og áföll í íslensku efnahagslífi, sem virðast endurtaka sig sí og æ! En iðulega hefur mér verið sagt að lausn á þessum vandræðum liggi í "okkar höndum" og að við þurfum einfaldlega "að sýna aga", sem ég ætla ekki að gera lítið úr.

Skoðun
Fréttamynd

Drauga­sögur nú­tímans

Í gamla daga var fólk almennt dauðhrætt við drauga og ógnvekjandi afturgöngur sem áttu það til að ráðast á fólk og misþyrma þegar þeir náðu tökum á því. Þá héldu flestir í einfeldni sinni að þeir þyrftu einlægt að glíma við drauga eins og Írafells-Móra, Þorgeirsbola og Mývatnsskottu einkum þegar dimma tók og fólk var eitt á ferð. 

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju ég kýs Já 29. ágúst

Ég hef búið í Danmörku í 8 ár. Ég borga 2,32% vexti af húsnæðisláni mínu í dag, og fimm árin þar á undan borgaði ég neikvæða vexti upp á 0,04% og það var ekkert neyðarúrræði. Ég hef aðgang að afborgunarlausum lánum, breytilegum vöxtum til 1, 3 eða 5 ára, föstum vöxtum til 30 ára, og lánamarkaði þar sem tugir stofnana keppa um viðskipti mín. Ekkert af þessu er í boði á Íslandi og sumt af þessu kann að hljóma ótrúlegt á Íslandi. En þetta er ekki skoðun, þetta er reynsla. Og þetta er ein ástæða þess að ég kýs Já þann 29. ágúst.

Skoðun
Fréttamynd

Ofan í skotgrafirnar

Síðast fréttist af skotgröfum á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Þær grófu erlendir hermenn, sem höfðu þó þá afsökun að heimsstyrjöld geisaði. Litlar sögur fara af dvöl Íslendinga í þessum gröfum, sem líktust helst framræsluskurðum íslenskra sveita, nema ef vera skyldi einhverjir „frjálslyndir" í leit að aukavinnu.

Skoðun
Fréttamynd

Landráðabrigsl og skrípaleikir

Ég hef um hríð verið að hugsa um að skrifa um það sem mér sjálfum liggur á hjarta í tilefni væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu í lok mánaðarins.

Skoðun
Fréttamynd

EES eða ESB – þar er efinn

Nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB hefur margt verið skrafað og skrifað. Það hefur einkum vakið athygli að oft er nokkuð frjálslega farið með grundvallarmarkmið og eðli EES samningsins.

Skoðun
Fréttamynd

Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin

Í grein sem birtist á Vísi 4. ágúst undir yfirskriftinni „Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins“ fjallar Ásta Guðrún Helgadóttir um aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu.

Skoðun
Fréttamynd

Er það hræðsla að segja nei?

Ég hef tekið virkan þátt í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst og hef ég ekki farið leynt með það að ég muni merkja við nei á mínum kjörseðli. Ég hef því oft verið spurður að því af hverju ég sé svona hræddur við það að sjá samninginn.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er mikil­vægast?

Ný könnun Maskínu sýnir að 77% landsmanna segjast ekki taka mikilvægar ákvarðanir nema hafa allar upplýsingar fyrir framan sig. Aðeins 8% eru ósammála. Ég held að þessi niðurstaða segi meira um okkur sem þjóð en margt annað. Við viljum vita hvað við erum að ákveða áður en við ákveðum okkur.

Skoðun
Fréttamynd

Sumar­há­tíðir, rán­dýrir vextir og óopnað um­slag

Við Íslendingar vorum rétt í þessu að ljúka við eina af okkar ástælustu hefðum. Tugþúsundir landsmanna tjölduðu um helgina, sungu brekkusöngva og stunduðu almenna heilsueflingu á tjaldsvæðum landsins. Það er eitthvað dásamlegt við þessa sumardaga. Þrátt fyrir að við þekkjum varla meira en 1% landsmanna persónulega og 99% séu okkur ókunnugt fólk, þá náum við samt að skemmta okkur, sýna samstöðu og gleðjast saman.

Skoðun
Fréttamynd

Innan ESB „mun Ís­land stjórna fisk­veiðum í Norður-Atlantshafi“

Þetta er haft eftir Dr. Indriða Benediktssyni í fróðlegu viðtali sem birtist í Heimildinni 1. ágúst s.l. og tekið er af Auði Jónsdóttur og Eiríki Bergmann. Indriði hefur nýlega látið af störfum, en hann starfaði í 30 ár hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, við vísinda- og heilbrigðis-samstarf þess.

Skoðun
Fréttamynd

Viðvörunarljós í evrópsku at­vinnu­lífi

Ég hef varið stærstum hluta starfsævi minnar í íslensku atvinnulífi. Þar lærði ég að stærstu ákvarðanirnar eru sjaldnast teknar í hita augnabliksins. Þær eru teknar þegar fólk gefur sér tíma til að horfa fram á veginn, vega og meta kosti og galla og spyrja einfaldlega: Hvað þjónar okkur best til lengri tíma?

Skoðun