Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar 23. maí 2026 07:01 Þann 18. maí sl. var alþjóðasamstarf í viðskiptum rætt í greinarstúfi í Vísi, í tengslum við hugmynd um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hér verður farið nokkrum orðum um umhverfismálin. Nú á tímum eru menn almennt á þeirri skoðun að jörðin sé hnöttur og samfella sé í lofti og sjó, þannig að í mörgum umhverfismálum sé óumflýjanlegt að viðhafa alþjóðlegt samstarf. Með alþjóðlegu samstarfi er vitaskuld átt við samstarf sem flestra ríkja á jörðinni, ekki framsal á stjórnvaldi frá Íslandi til sambands ríkja á meginlandi Evrópu, þar sem um 5% jarðarbúa á heima. Það er eðli fjölmiðlunar að fjalla mest um það sem út af bregður. Að allt gangi vel og muni ganga enn betur á morgun virðist ekki gera sig sem frétt og fáir heyra af því, nema auðvitað þeir sem vinna við verkin. Á sínum tíma var súrt regn mikið vandamál. Heilu skógarnir skemmdust og fiskar í vötnum dóu unnvörpum. Tekist var á við vandamálið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og árið 1979 var gerður alþjóðlegur samningur um loftmengun, sem kenndur er við Genf í Sviss. Í kjölfar samningsins og síðari tíma bókana má segja að málið hafi verið leyst. Á svipuðum tíma var unnið að samkomulagi um að koma böndum á útblástur ósoneyðandi efna. Árið 1987 tók í gildi samningur um þau mál sem kenndur er við kanadísku borgina Montreal og hefur ósonlagið hægt og rólega verið að taka við sér. Nú er helst tekist á við að koma böndum á útblástur efna sem stuðla að hækkandi hita lofthjúpsins. Það er viðamikið og dýrt mál sem tekist er á við á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur um hríð verið í samfloti með Evrópusambandinu í þessu máli, en það hefur verið gagnrýnt, m.a. á þeim forsendum á slíkt leiði til kostnaðar án þess að ávinningur í formi minni útblásturs sé alltaf ljós. Hér eru nefnd þrjú stór umhverfismál sem tekist hefur verið á við með alþjóðlegu samstarfi ríkja heims. Öll þessi mál voru og eru keyrð áfram með farsælu alþjóðasamstarfi. Ísland getur tekið þátt í því sem eitt af tæplega 200 sjálfstæðum ríkjum í heiminum. Aðild að Evrópusambandinu hjálpar ekki í þeim efnum, en getur verið til trafala. Höfundur er prófessor í veðurfræði og formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Þann 18. maí sl. var alþjóðasamstarf í viðskiptum rætt í greinarstúfi í Vísi, í tengslum við hugmynd um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hér verður farið nokkrum orðum um umhverfismálin. Nú á tímum eru menn almennt á þeirri skoðun að jörðin sé hnöttur og samfella sé í lofti og sjó, þannig að í mörgum umhverfismálum sé óumflýjanlegt að viðhafa alþjóðlegt samstarf. Með alþjóðlegu samstarfi er vitaskuld átt við samstarf sem flestra ríkja á jörðinni, ekki framsal á stjórnvaldi frá Íslandi til sambands ríkja á meginlandi Evrópu, þar sem um 5% jarðarbúa á heima. Það er eðli fjölmiðlunar að fjalla mest um það sem út af bregður. Að allt gangi vel og muni ganga enn betur á morgun virðist ekki gera sig sem frétt og fáir heyra af því, nema auðvitað þeir sem vinna við verkin. Á sínum tíma var súrt regn mikið vandamál. Heilu skógarnir skemmdust og fiskar í vötnum dóu unnvörpum. Tekist var á við vandamálið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og árið 1979 var gerður alþjóðlegur samningur um loftmengun, sem kenndur er við Genf í Sviss. Í kjölfar samningsins og síðari tíma bókana má segja að málið hafi verið leyst. Á svipuðum tíma var unnið að samkomulagi um að koma böndum á útblástur ósoneyðandi efna. Árið 1987 tók í gildi samningur um þau mál sem kenndur er við kanadísku borgina Montreal og hefur ósonlagið hægt og rólega verið að taka við sér. Nú er helst tekist á við að koma böndum á útblástur efna sem stuðla að hækkandi hita lofthjúpsins. Það er viðamikið og dýrt mál sem tekist er á við á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur um hríð verið í samfloti með Evrópusambandinu í þessu máli, en það hefur verið gagnrýnt, m.a. á þeim forsendum á slíkt leiði til kostnaðar án þess að ávinningur í formi minni útblásturs sé alltaf ljós. Hér eru nefnd þrjú stór umhverfismál sem tekist hefur verið á við með alþjóðlegu samstarfi ríkja heims. Öll þessi mál voru og eru keyrð áfram með farsælu alþjóðasamstarfi. Ísland getur tekið þátt í því sem eitt af tæplega 200 sjálfstæðum ríkjum í heiminum. Aðild að Evrópusambandinu hjálpar ekki í þeim efnum, en getur verið til trafala. Höfundur er prófessor í veðurfræði og formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands.
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun