Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 23. maí 2026 14:02 Það er sjálfsagt að þjóðin fái að segja sitt um hvort Ísland eigi að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í svo stóru máli væri fráleitt að óttast dóm kjósenda enda er um að ræða vegferð sem getur haft áhrif á fullveldi, auðlindir, byggðir og atvinnulíf til langrar framtíðar. En það er ekki sama hvernig og hvenær slík ákvörðun er lögð fyrir þjóðina. Þjóðaratkvæðagreiðsla af þessu tagi verður að byggjast á hlutlausum og gegnsæjum upplýsingum. Það þýðir ekki að rjúka fram nokkrum dögum fyrir boðaða atkvæðagreiðslu með gögn og efni sem almenningur á þá að melta í flýti. Í svo stóru máli þarf lengra samtal og íhugun. Fáir myndu treysta sér til að taka ákvörðun um að fjárfesta í nýjum tækjum, reisa viðbyggingu, byggja nýtt fjós, kaupa jörð eða breyta rekstri á grundvelli kynningar sem birtist rétt áður en skrifað er undir. Engin fjölskylda tekur húsnæðislán án þess að skoða greiðslubyrði, vexti og áhættu og annað samhengi hlutanna. Sama hugsun á að gilda um þjóðina þegar kemur að mögulegum aðildarviðræðum. Áhyggjur af efnahagsmálum Staða efnahagsmála veldur okkur flestum töluverðum áhyggjum. Vextir eru háir og hafa nýlega hækkað, heimili finna fyrir aukinni greiðslubyrði og rekstur margra fyrirtækja er þungur. Fyrir matvælaframleiðslu og raunar alla starfsemi og mannlíf á landsbyggðinni eru áhrifin augljós. Þau koma fram í þungum afborgunum af rekstrarlánum, vélum og tækjum og ekki síst í því að hátt vaxtastig dregur úr möguleikum fólks til að kaupa sér heimili og byggja upp framtíð sína. Staðan er einfaldlega ekki góð. Eftir nýlega vaxtahækkun Seðlabankans er eðlilegt að fólk horfi áhyggjufullt til haustsins. Fólk verður uggandi þegar það sér kostnað og óvissu aukast á meðan stjórnmálin snúast um óljósa ESB-vegferð í stað þess að ná fyrst betri tökum á verkefnunum hér heima. Einmitt í þessu ljósi er fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2027 til 2031 svo mikilvæg. Hún á að vera vegvísirinn og svara spurningum um vexti, verðlag, uppbyggingu og lífskjör. Þingið fjallar um hana í næstu viku og það er þar sem athyglin á að vera. En því miður er umræðan um hana að drukkna í ESB-hávaðanum, og það er mjög óheppilegt enda felur áætlunin í sér fjármála- og efnahagsleg grunngildi sem snerta alla landsmenn næstu ár. Fyrirsjáanleiki í gjaldtöku og uppbyggingu Eitt af stóru verkefnunum framundan er að tryggja aukinn trúverðugleika í efnahagsstjórn landsins. Þar er fyrirsjáanleiki lykilatriði. Þegar fyrirtæki, bændur og heimili ráða illa við skatta, gjöld og álögur hins opinbera, sem taka allt of hröðum breytingum, dragast fjárfestingar saman og óvissa eykst. Þetta er vandinn sem við stöndum frammi fyrir í dag. Ríki, sveitarfélög og stofnanir þurfa eðlilega að hækka gjöld með reglulegu millibili. Vandinn er sá að slíkt er gert án samræmingar og án nægilegrar heildarsýnar á áhrif gjaldahækkana. Niðurstaðan er dýrari uppbygging, minni fjárfesting og aukin óvissa meðal annars á húsnæðismarkaði, í atvinnulífi og í allri innviðauppbyggingu. Verkefnið framundan er því að ræða af alvöru hvort gjaldtaka hins opinbera sé nægilega samræmd og skynsamleg. Við þurfum umfram allt samræmdari gjaldtökuáform sem auka fyrirsjáanleika og sérstaklega við uppbyggingu innviða og á fasteignamarkaði. Það er ekki nóg að vísa í góðar fyrirætlanir. Kerfið sjálft þarf að vera skýrt og áreiðanlegt. Atvinna alls staðar Þetta á ekki síður við um nýsamþykkta atvinnustefnu stjórnvalda. Hún verður að skila sér í störfum, framleiðni og verðmætasköpun í öllum landshlutum en ekki bara á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki nóg að tala um vöxt ef ungt fólk sér ekki tækifæri til að búa og starfa utan stærstu þéttbýliskjarnanna. Vinnumarkaðurinn þarf að þróast sjálfbært. Launaþróun, framleiðni, verðbólga og vextir verða að haldast í hendur. Þetta er allt undir okkur sjálfum komið. Landbúnaðurinn má ekki gleymast Íslenskur landbúnaður er einstakur. Hann byggist á hreinu landi, góðu dýraheilbrigði, ströngum kröfum, fjölskyldubúum og þeirri staðreynd að byggð verður ekki haldið uppi með orðum einum. Matvælaframleiðsla snýst ekki aðeins um verðmiða dagsins, eða tilboð vikunnar. Hún snýst um fæðuöryggi, uppruna, búsetu, nýtingu lands og getu þjóðarinnar til að framleiða eigin matvæli við norðlægar aðstæður. Þess vegna verða þeir sem tala fyrir aðildarviðræðum að upplýsa á gegnsæjan hátt hvað þær kunna að þýða t.d. fyrir íslenskan landbúnað, tollvernd, stuðningskerfi, byggðasjónarmið og sjálfstæða stefnumótun. Rauðu línurnar þurfa að liggja fyrir. Fyrst þarf stöðugleika í efnahagsmálum og hlutlægar upplýsingar um það sem í húfi er. Svo getur þjóðin kosið. Höfundur er bóndi og þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokkurinn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun